    <language>is</language>
Kossar
      <description>Ásta Lovísa hefdi ordid 34 ára í dag.  Til hamingju med daginn Ásta mín.  Kvedja frá okkur öllum.  Set fljótlega inn myndir af krökkunum.  Dadi</description>
Minning
      <description>Minning um hetju sem féll frá fyrir 2 árum í dag.....................</description>
Systkynin
Kossar
      <description>Langaði að setja inn mynd af afmælisbarni dagsins, elskulegri systur minni henni Ástu Lovísu, sem hefði orðið 32 ára í dag.  Þúsund kossar frá okkur öllum.  Daði</description>
Minning um hetju
      <description>Elsku Ásta mín!Í dag er eitt ár liðið frá því að þú kvaddir þennan heim með reisn.   Minningin um hetju lifir og enn í dag lesa margir bloggfærslur þínar á heimasíðunni.  Þú heldur áfram að hafa áhrif á fjölda fólks daglega og þín er sárt saknað.  Það líður ekki sá dagur að við hugsum ekki til þín með væntumþykju og aðdáun.  Langaði að setja inn mynd af fallega leiðinu þínu enda hefurðu og verður alltaf  englastelpan okkar.Daði </description>
Falleg mynd
      <description>Varð að deila þessari mynd af Ástu Lovísu með ykkur,Daði  </description>
Bréfið
      <description>Elsku Ásta mín!Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt.  Í gær voru 8 mánuðir frá því að þú kvaddir okkur.  Finnst samt eins og þetta hafi gerst fyrir nokkrum dögum síðan.  Magnað hvað væntumþykjan, virðingin  og stoltið situr fast í hjörtum okkar.  Írenu dreymdi þig um daginn.  Litli engillinn var í faðmlögum við móðir sína rétt áður en hún vaknaði.  Gaman ad heyra hvað þú sækir sterkt í börnin þrátt fyrir ný heimkynni.    Ég get varla beðið lengur eftir bréfinu þínu.  Eins og margir vita var Ásta okkar mjög skipulögð.  Þegar hún gerði sér grein fyrir að skammt var til stefnu lét hún fara með sig í bæinn að versla gjöf og bréfsefni.  Tilefnið var að Daði bróðir yrði sérfræðingur í  skurðlækningum í febrúar 2008.  Gjöfin var keypt og skrifaði Ásta bréf til mín sem ég fengi svo afhent þegar að stóra deginum kæmi.  Hún lét mig vita af þessu nokkrum dögum fyrir andlát sitt og síðan þá hefur þetta ekki horfið úr huga mér.  Ég hlakka óendanlega mikið til að sjá ritstíl þinn aftur, upplifa kærleikan sem ríkti okkar á milli og skynja nærveru þína.  Takk fyrir að hafa verið til,Daði</description>
Jóla- og nýárskveðja
      <description>Óskum ykkur lesendur góðir gleðilegra jóla og vonum að nýja árið verði ykkur farsælt og gæfuríkt.  Daði</description>
Afmæliskveðja
      <description>Elsku Kristófer Daði  Til hamingju með afmælisdaginn þinn elsku vinur.  Vona að veislan verði skemmtileg og ég hlakka til að heyra í þér í síma seinna í dag.  Kveðja,  Daði frændi</description>
Alla helgons dag
      <description>Um þessa helgi er allra heilaga messa (alla helgons dag).  Þá er hefð að minnast látinna ættingja og vina.  Í Svíþjóð er þetta stór dagur og fara flestir í kirkjugarða með luktir og kerti og minnast látinna ástvina.  Í dag eru rúmir 5 mánuðir frá því að Ásta Lovísa féll frá og langar mig að minnast hennar með þessum skrifum.  Það líður ekki sá dagur að ég hugsa ekki til þín Ásta mín, minnist æsku okkar, vinskap, daglegra samtala og samskipta.  Ég gleymi aldrei viðmóti þínu, brosi og augnsvipum ásamt kímni, heiðarleika og hreinskilni.  Þín er sárt saknað af börnum, unnusta, systkinum, foreldrum og vinum.  Minning þín varir að eilífu.  Þúsund kossar og faðmlög til þín, hetjan mín, yfir þessa sérstöku helgi........Daði</description>
Myndir
      <description>Komnar inn nokkrar myndir af Tenerife-förum í myndaalbúmið.Kveðja, Daði </description>
Afmælissól
      <description>Til hamingju með 9 ára afmælið elsku Embla mín.  Vona að heimferðin verði góð á morgun og ég hlakka til að setja inn myndir af ykkur úr sólinni.Kveðja, Daði frændi</description>
Draumar rætast
      <description>Eins og flestir vita sem lesa þessa bloggsíðu var Ásta Lovísa valin Íslendingur ársins 2006 af tímaritinu Ísafold.  Auk þess heiðurs sem því fylgir fékk Ásta að launum ferð til Tenerife fyrir sig, börnin þrjú og fylgdarmann.  Upprunalega stóð til að leggja í hann í kringum páskana en sökum veikinda Ástu og í samráði við lækna varð aldrei af þeirri ferð.  Ásta lét okkur lofa því á dánarbeði sínu að farið yrði með börnin eftir hennar dag og rættist það í gær .  Guja amma og Hödd frænka tóku allan skarann í gær og héldu í langt ferðalag til Tenerife, börnin yfirspennt og gleðin skein úr augum þeirra langa leiðir.  Flugið gekk vel og liggur fyrir 2 vikna ævintýraferð fyrir litlu englana sem misst hafa svo mikið.  Læt vonandi seinna meir inn myndir af ferðalöngunum eftir komu þeirra heim.Með kveðju,Daði</description>
Minningin lifir
      <description>Vildi bara láta ykkur vita að bloggsíðan hennar Ástu minnar verður opin um ókomna framtíð.  Er það gert til þess að varðveita skrif hennar og lífsvisku .Með kveðju,Daði bróðir</description>
Afmæliskossar 
      <description>Elsku Írena RutTil hamingju með 4 ára afmælisdaginn þinn, litli engill! .  Mamma þín er hjá þér í anda og heldur upp á daginn með þér.  Kossar og knús frá Svíþjóð.Daði frændi </description>
Afmæliskveðja
      <description>Elsku Nína mín!Til hamingju með daginn.   Afmæliskossar til þín og Ástu.Daði bróðir</description>
Afmæliskveðja
      <description>Elsku Ásta mín!Til hamingju með afmælisdaginn þinn.  Vona að þér líði sem best og að þú náir að njóta dagsins.  Söknum þín mikið.Daði bróðir</description>
Engill á himni
      <description>Elskuleg systir mín, Ásta Lovísa, andaðist á Líknardeild Lsp í Kópavogi fyrr í dag.  Fjölskyldan vill senda þakkarkveðjur fyrir allan stuðninginn, hlýhug og falleg orð.  Þið gáfuð Ástu ómetanlegan styrk í baráttu hennar.Með fyrirfram þökk og virðingu,Daði bróðir</description>
Ósk
      <description>Eins og margir hafa eflaust séð fengum við ósmekklega athugasemd við bloggfærslu okkar hér fyrr í kvöld.  Ég hef nú fjarlægt þau komment og bið þá aðila, sem ekki eru sáttir við það sem hér fer fram, að blogga á eigin síðum og láta okkur í friði.Með kveðju,Daði bróðir</description>
Baráttujaxl
      <description>Ásta náði að hvílast vel í nótt.  Aukið við lyfjameðferð daglega til þess að láta henni líða sem best.  Lifrarbilunareinkennin aukast með hverjum degi en baráttuþrek Ástu eykst því samhliða.  Börnin eru í heimsókn í þessum töluðu orðum og tekst þeim alltaf að kalla fram það besta í mömmu sinni.  Ásta þakkar allar kveðjurnar og fallegu orðin, en kveðjurnar eru lesnar upp fyrir hana á hverjum degi, að hennar eigin ósk.Sendir kossa og knús á línuna (hennar eigin orð) og segist ekki vera tilbúin í að leggja árar í bát.Með kveðju,Daði bróðir</description>
Svaf eins og engill
      <description>Eftir betri og öflugri verkjameðferð átti Ásta loksins góða nótt.  Svaf eins og engill og án verkja.  Ásta er meira vakandi í dag en áður og líður vel.  Hefur getað borðað aðeins og náð að spjalla við nánustu og átt góðar og fallegar stundir með börnunum.  Starfsfólkið og umhverfið hér á líknardeildinni er yndislegt.  Hún kastar kveðju til ykkar allra með þakklæti og virðingu.Með kveðju, Daði bróðir</description>
Fréttir af Ástu
      <description>Ásta hefur verið með töluverða verki síðustu daga og ekki náð góðum svefni.  Eftir niðurstöður rannsókna gærdagsins og í dag var ákveðið í samráði við Ástu að flytja hana á Líknardeild LSP.  Aðstæður og umhverfi fyrir sjúklinga og þeirra nánustu er mun betra þar.Ásta vill þó koma á framfæri að hún lítur alls ekki á þetta sem endastöð og neitar alfarið að gefast upp.Kveðja, Daði bróðir.</description>
Fyrirbænir
      <description>Hef sorglegar fréttir.  Ásta Lovísa er mjög veik eins og stendur.  Er komin í lifrarbilun sökum meinvarpanna.  Heldur áfram í rannsóknum í dag.  Hún vildi koma því á framfæri að hún væri ekki tilbúin í að gefast upp.  Bið ykkur öll um að hugsa til hennar og senda fallegar hugsanir.  Ef einhvern tíman er þörf, þá er stundin núna.Daði bróðir</description>
Bakslag
      <description>Skrifa aftur fyrir hönd systur minnar.  Líðan hennar verið að versna undanfarna daga.  Ásta hitti krabbameinslækninn sinn seinni partinn í dag og í kjölfar þess ákveðið að leggja hana inn á krabbameinsdeildina til frekari rannsókna.  Ásta sendir kveðjur og hefur beðið mig að láta ykkur vita þegar við vitum meira.Kveðja, Daði bróðir</description>
Úppps ..sorry... Betra seint en aldrei ;)
      <description>Það er orðið ALLT of langt síðan ég bloggaði síðast... Sé að ég er búin að valda sumum kvíða og áhyggjum.. sorry !Ég er búin að vera frekar óþekk og vera sama og ekkert heima frá morgni til kvölds alla daga og því ekkert við tölvu. Ég fékk allt í einu æði í að gera allt annað en að vera heima ... Hefði betur átt að slaka aðeins því ég fékk þetta allt í hausinn tilbaka. Í gær varð ég þreföld eins og önd um allan líkamann af bjúgi og líkaminn sagði bara stopp. Er komin á þvagræsislyf til að reyna að losa þetta og má voða lítið labba...NAUGHTY ME .Það var bara eins og ég fengi vítamínssprautu í rassgatið og langaði bara að gera allt .Ég er líka búin að vera í mikilli andlegri vinnu með hjálp góðra manna. Ég hef lært meira á þessari viku en ég hef gert leeeeeengi.. Ég er því miður rosalega föst í fortíðinni og framtíðinni og gleymi að lifa í deginum í dag, njóta hans og vera þakklát fyrir að vera á lífi Í DAG ! Ég er allt of föst í gamalli gremju og gremjast út í gamla syndir mínar og annarra í minn garð. Ég er að reyna að taka utan um þetta allt, knúsa þessa gremju og sleppa henni aftur fyrir mig og SLEPPA TÖKUNUM í eitt skipti fyrir öll.Það er bara dagurinn í DAG sem skiptir máli og ég lifi í honum brosandi og glöð... Er því farin að byrja daginn á því að biðja um góðan dag og setja bros í hjarta mitt og opna fyrir hjartastöðina. Ég er allt of föst í höfuðstöðinni en á að vera í hjarta og VÁ þetta virkar. Verðið að prufa án gríns .Ég verð eiginlega að segja ykkur fyndna sögu. Ég fór um daginn í búðina Betra líf í Kringlunni og var að kaupa einhverja steina og spil með svona spakmælum á. Þegar ég kem heim þá er ég að taka upp úr pokanum og viti menn þarna laumaðist bók með sem heitir Fyrirgefning sem ég ætlaði mér ekkert að kaupa en bókin ætlaði greinilega með mér heim . Það sem fyndnast við þetta allt saman er að það stendur í henni að þessi bók hafi örugglega komist í hendur mínar af tilviljun og þetta væri leið Guðs að ná til manns þegar maður þyfti mest á þessu að halda. Ég er alveg heilluð af henni og er alltaf með hana í höndunum. Þessi bók er bara ég og hvernig lífi ég hef lifað. Þarna er manni kennt að taka allt svona fortíðardót, gera það upp, fyrirgefa og halda áfram í deginum í dag. Ekkert smá fyndið .Miðað við allt þá er ég ótrúlega glöð í hjartanu mínu þessa dagana og vonandi heldur það bara áfram. Mér líður rosa vel, lítið um verki og er alveg ótrúlega ástfangin . Ég er í raun ennþá svífandi á mínu bleika skýi og njóta þess að vera á lífi í dag. Ég skal lofa að bæta úr bloggleysinu mínu.. Ætlaði ekki að láta fólk halda að eitthvað mikið væri að þegar ég þeysist um allan bæ á mínu bleika hamingjusama skýi Knús á ykkur og prufið að byrja daginn á því að brosa, þakka fyrir daginn í dag og opna fyrir hjartað... Er það DÍLL ???Knús og liðiðTjá tjá Ásta Lovísa</description>
Ljósið í myrkrinu, ljósið í lífi mínu...
      <description>Þó að ég hafi fengið hræðilegar fréttir í New York ... Gerðist jafnframt dásamlegur hlutur í mínu lífi . Mig hefur mikið langað til að segja ykkur frá þessu fyrr en beit í tunguna á mér þar sem ég vildi segja fyrst vinum og ættingjum.Ég hef yndislegar fréttir að færa ... Nú er ég opinberlega heitbundin kona . Ég og Diddi minn trúlofuðum okkur á veitingastaðnum Rainbow Room í Rockafeller Center á 86. hæð.Það er veitingastaðurinn sem t.d myndin Sleepless in Seattle er að hluta til tekin upp.Aðstæður okkar eru skrítnar hvernig sem á það er litið en þetta var bara eitthvað sem að ég þráði svo rosalega á þessum tímapunkti í mínu lífi og þar sem ég elska þennan strák.Langaði rosalega að deila með ykkur þessum frábæru fréttum .... I´M OFF THE MARKET !!!! Ég er ekki mikið kvalin þessa dagana.. Kannski er ég ennþá svífandi um á mínu rómantíska skýi.. Allavega þá virðist það virka vel ... Því mér líður svakalega vel og er hamingjusöm og hef verið það síðustu daga.Langaði að kasta kveðju á liðið.... Haldið áfram að vera góð við hvert annað.Knús og klemmmKv Ásta Lovísa nýtrúlofaða</description>
Mætt aftur á svæðið
      <description>Loksins kom að því.. Er núna sest fyrir framan tölvuna og farin að skrifa nýja bloggfærslu.Síðustu dagar hafa verið mér erfiðari en ég hef nokkurn tímann upplifað áður. Ég var svo full bjartsýnar og vonar og allt í einu sprakk blaðran og ég sé enga leið út.En viti menn mér er nákvæmlega sama hvað hver segir. Ég ætla mér að lifa meira en nokkra mánuði. Það er ekkert hægt að segja svona og ákveða að þessi x manneskja eigi þessa x marga daga eftir. Við erum jafn misjöfn eins og við erum mörg og ég er ákveðin að taka einn dag í einu og lifa sem lengst. Ég er búin að ræða við tvö elstu börnin mín. Úskýra fyrir þeim alvarleikann sem við mér blasir núna.Þau verða að vita alla möguleikana og vera undir það búin. Ég hélt svei mér þá að hjarta mitt myndi kremjast trillján sinnum á meðan. Að sjá alla hræðsluna og örvæntinguna í litlu augunum þeirra og öll litlu tárin og geta ekki sagt neitt til að draga úr sársaukanum. Get rétt ímyndað mér hvernig litlu skinnunum líður.... Úffffff lífið er svo ósanngjarnt eitthvað.Ég vil ennþá trúa að ég eigi von. Ég vil ennþá trúa að ég eigi eftir að gifta mig eftir nokkur ár, ferma börnin mín o.s.frv .. o.s.frv.  Ég ætla mér og ég skal !!Knús á línuna og takk fyrir allar fallegu kveðjurnarKv Ásta Lovísa</description>
Sorgarfréttir
      <description>Skrifa í dag fyrir hönd systur minnar sem treystir sér ekki til að skrifa.  Læknarnir höfðu samband.  Meinvörpin þekja nú 60% af lifrinni og það sem verra er sjást nú skýr merki þess að krabbameinið situr á fleiri stöðum í líkamanum.  Læknarnir í NY geta því ekki hjálpað, hvorki með skurðaðgerð né lyfjameðferð.  Sjúkdómurinn er ólæknandi og að sögn þeirra á Ásta nokkra mánuði eftir ólifaða.  Ráðlögðu þó ákveðinn lyfjakokteil heima á Íslandi með von um svörun.  Við erum á heimleið á morgun og er næst á dagskrá að hafa samband við læknana á Íslandi til þess að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að lengja þennan tíma.  Ásta þakkar kærlega fyrir veittan stuðning og hlýhug og sendir kossa á línuna.  Ásta biður um smá tíma til að melta þessi tíðindi í friði, þ.e. fyrir SMS og símhringingum.    Hún mun skrifa ykkur eins fljótt og hún treystir sér til.Með kveðju og þökk,Daði bróðir</description>
Svar óskast
      <description>Fengum því miður ekkert svar í gær.  Biðum og biðum en án árangurs.  Klukkan er núna 8 að morgni og erum við á leið niður á sjúkrahúsið til þess að fá svör.  Dálítið sérstök framkoma undir þessum kringumstæðum.  Látum ykkur vita um leið og við heyrum eitthvað. Vonandi fljótlega.  Kveðja,NY-farar</description>
Engar fréttir ennþá... :(
      <description>Erum búin að sitja við símann í allan dag og höfum ekkert frétt ennþá.. Því miður . Ég bara varð að setja inn blogg því ég veit að það eru svo margir að bíða og bíða eins og við hér og ég er að fá endalaust sms.Æji mér finnst pínu vont að vita ekkert og þeir sögðu í gær ætla að hringja á morgun .. Ekkert um tímasetningar eða neitt.Klukkan hér núna er 15:19 þannig að ég get ekki ýmindað mér að þeir vinni mikið lengur í dag. Hvað ef þeir hringja svo ekkert í dag ???Þá mæti ég þarna upp eftir strax í fyrramálið. Það er alveg á hreinu !!!Ef ég má vera hreinskilin þá finnst mér þetta pínu furðuleg vinnuaðferð.. Vitandi að ég er þetta veik og komandi frá Íslandi. Sorry þið bara verðið að afsaka taugarnar þær eru alveg að fara með mig. Svaf lítið vegna spennings .. Eðlilega !!Um leið og ég heyri eitthvað hvort sem það verður á eftir í eða í fyrramálið .. Svei mér þá... Þá læt ég ykkur vita. Pirrings kveðjur frá Ástu </description>
New York.... New York
      <description>Hæhæ  nú blogga ég hérna beint frá stóra eplinu !!Ferðin hingað í gær gekk þrusu vel fyrir sig . Allt stóðst sem átti að standast þannig að ég var ennþá vel hress þegar við náðum á leiðarenda.Í morgun mætti ég, Diddi og Daði bróðir saman á Sloan Kettering Centerið og þurftum að fylla ennþá meira fjall af pappírum.Eftir það hitti ég læknana og var send í blóðprufu, CT Scan af kviðarholi og lungum.Ekkert smá gott að þessi dagur hafi loksins gengið í garð. Ég er búin að vera brosandi allan hringinn þrátt fyrir að dagurinn hafi tekið á ... Þetta var bara svo svakaleg upplifun eitthvað.Umhverfið hérna er eitthvað svo allt öðruvísi heldur en maður er vanur heima.  Á morgun fáum við að vita út úr myndunum. Hittum læknana reyndar ekki.. Heldur eigum við að bíða eftir símtali frá þeim.Myndirnar segja allt sem segja þarf um framhaldið og hvað hægt sé að gera.Þannig að við sitjum hérna með krosslagðar fingur og vonum eftir góðum fréttum á morgun.Ef meinvörpin eru ennþá bara í lifrinni þá talaði Dr. Angelica að mín besta von um einhver framför væri að fá brunn beint í lifrina. Þá verður það gert hér í NY mjög fljótlega... Jafnvel í þessari ferð sagði hann. Fengum að sjá þennan brunn og VÁ hann er HUGE ... hehehhe... Enda kallaður "Hockey Pökk" hérna úti.Kom mér ekkert smá á óvart hvernig hann lítur út í samanburði við þann litla sem ég er með á bringunni.Honum er komið fyrir á vöðva við mjaðmaspaða, gallblaðran er fjarlægð og snúra sett beint í æð þarna í lifrinni.Mér líður rosa vel .. Verið pínu þreytt og kvalin en samt eitthvað svo glöð og jákvæð .Ég held svei mér þá að ég hefði ekki getað skilið allt sem doksarnir sögðu og þeir mig án þess að hafa Daða "bró" doksa með í för... Það skipti greinilega öllu fyrir mig að hafa hann með þrátt fyrir að ég og Diddi skiljum ágætlega ensku. Hann lenti svo oft að þýða fyrir okkur það sem hinir læknarnir voru að segja og ég var oft eitt spurningarmerki. Þannig að þetta var 100% rétt ákvörðun að hafa hann með í þessari fyrstu ferð .. Þar sem við þurftum að vera að segja læknunum sjúkrasöguna mína aftur og aftur og fram og tilbaka.Ég ætla að láta þessa romsu mína duga í bili .. Þar til á morgun. Munið að krossa fingur fyrir mig og senda mér hugsanir og ég mun gefa upplýsingar um leið og ég kemst í það um framhaldið og útkomu myndanna.Knús heim á klakannKv Ásta og CO...</description>
Þórdís Tinna og NY
      <description>Elskuleg vinkona mín hún Þórdís Tinna átti virkilega erfiðan dag í gær. Því miður þá hefur hún greinst með krabbamein að nýju og þarf í stóra aðgerð í næstu viku. Ég veit að þið hafið hjálpað mér rosalega mikið og mig langar til þess að biðja ykkur að hjálpa henni líka ef þið mögulega getið. Hún þarf sannarlega á ykkar stuðning að halda núna og ég grátbið ykkur að stoppa við á síðunum hennar.http://blog.central.is/thordistinnahttp://68.simnet.is/Á morgun hefst hjá mér ferðalagið langa til stórborgarinnar NY. Á mánudaginn er rannsóknardagurinn þannig að ég efast um að ég geti sett neitt inn fyrr en á þriðjudag hvernig það fer allt saman. Það er 5 tíma mismunur á milli landana þannig að þegar ég er að mæta í CT kl 14 þá er kvöldmatarleyti hér á Íslandi. Held svo að myndirnar verði ræddar sama dag eða daginn eftir veit það samt ekki alveg á þessari stundu.Er pínu stressuð á að þeir sjái eitthvað sem að hefur ekki sést hér á landi með okkar tækni og verð að viðurkenna að ég er ekki alveg búin að vera upp á marga fiska í dag. Komin í smá spennufall ...Loksins komið að þessu langþráða ferðalagi. Ég hræðist líka að kannski er komið einhver önnur hlið upp sem þeir ráða svo ekki við. Örugglega alveg eðlilegar vangaveltur og hræðsla þegar maður er stanslaust að berjast.Þetta skírist allt betur þegar ég kem þarna út og vonandi gengur þetta bara allt vel.Vil þakka ykkur enn og aftur fyrir stuðninginn því án ykkar allra væri ég ekki á leiðinni til NY. Allavega þá ætla ég að kveðja ykkur í bili og set inn fréttir um leið og ég get eða fengið vinkonu mína til þess.Kv Ásta NY fari</description>
Dagurinn í dag...
      <description>Skellti mér í heilun í morgunn.. Náði meira að segja að sofna þar þrátt fyrir ofvirknina út af sterunum .. Það segir allt sem segja þarf hversu gott þetta var .Margir eru að svekkja sig á því að ég fái ekki meðferð þarna úti strax í þessari för. Málið er að þó svo að það væri í boði þá gæti líkaminn minn ekki tekið við neinum meðferðum núna því hann er ennþá of veikur eftir veikindin sem ég var að stíga upp úr. Við viljum nú ekki að meðferðin sjálf komi mér í gröfina þannig að það hefði hvort sem er ekki verið hægt.Ég er hætt að trúa á tilviljanir og ég veit að þetta á að vera svona og hitt fylgir svo á eftir þegar það á að gerast. Þarf nú varla að bíða mikið lengur þegar boltinn er kominn af stað. Ég trúi því  allavega!! .Solla í Ljósinu þú mátt endilega slá á þráðin til mín aftur við tækifæri. Ég man ekki númer þitt og langar svo að heyra í þér aftur .Knús á liðiðKV Ásta Lovísa</description>
Fréttir af mér :)
      <description>Allt gengur sinn vanagang...  Bíð spennt eftir sunnudeginum . Er frekar ör og stuttur í mér þráðurinn núna út af sterunum en ég reyni að láta það ekki á mig fá. Þessir sterar eru víst frekar erfiðir ... Erfitt með svefn og á erfitt með að sitja kyrr... Frekar fyndið .Á mánudaginn verður langur og erfiður dagur í NY ... Fæ að hitta sérfræðingana og þarf að fara í myndatöku allt sama daginn. Held að ég fari svo bara aftur heim fljótlega aftur og þá verða myndirnar skoðaðar og framhaldið ákveðið. Hef ekki trú á öðru en að ég fari því fljótt út aftur til NY... þegar maður er á annað borð alveg komin til þeirra og búið að skoða mann og svona. Þannig að ég ætla rétt að vona að þessi endalausa bið fari að taka enda.Allavega þá hef ég það alveg ágætt núna og á fullu að safna kröftum núna fyrir löngu ferðina mína á sunnudaginn.Takk öll fyrir að vera svona yndisleg ....Kv Ásta Lovísa</description>
Loksins ... Loksins komin heim :)
      <description>Jæja þá er maður loksins komin heim... Get ekki lýst því hvað það er gott . Þetta eru búnar að vera frekar erfiðar tvær vikur.. Berjast við hita, verki og ógleði. Sýklalyfin virkuðu trúlega ekki og á endanum var ég meðhöndluð með steralyfjum sem að styðja líklega þá tilgátu að ég sé komin með svo kallaðan tumor hita . Þá leysa meinvörpin út eitthvað efni í líkamann sem að líkaminn svarar með því að gefa frá sér hita. Úfff ég ætla samt rétt að vona ekki.. því það ástand gæti þá verið komið til með að vera og þá þarf ég að vera mikið meðhöndluð af sterum sem er ekki gott fyrir líkamann lengi og ekki gaman að vera eins og útblásin hvalur alltaf hreint.Á sunnudaginn er stefnan tekin á NY til að fá annað álit. Þá fæ ég að hitta læknana mína og verð send í CT scan í þeirri ferð . Er búin að fá tíma á mánudeginum þannig að núna er bara að halda mér í gjörgæslu og til að safna kröftum þangað til.Ætla ekki að hafa þetta mikið lengra núna er ennþá frekar máttlaus og sloj.. Vildi bara láta heyra í mér og láta vita að ég er á batarvegi.Kv Ásta Lovísa</description>
Nýjar fréttir af Ástu Lovísu
      <description>Ásta bað mig að senda ykkur kveðju og setja inn fréttir af henni.Hún er ennþá á spítalanum.  Það er búið að taka hana af sýklalyfjunum af því að þau eru greinilega ekkert að virka nógu vel á hitann.  Í staðin var hún sett á stera.  Hún mældist líka lág í blóði og fékk blóðgjöf í gær og hresstist við það.Hún er hressari í dag en í gær.Ásta fór í sneiðmyndatöku sem sýndi stækkun á meinvörpunum en sem betur fer hefur þeim ekki fjölgað og þau hafa ekki dreift sér.  Það eru góðar fréttir  Nú miðast allt að því að Ásta nái sér nægjanlega vel til að hún geti farið til NY næsta sunnudag.  fh. Ástu LovísuArndís K.</description>
Enn á spítala
      <description>Hún Ásta okkar er ennþá á spítalanum   Sýklalyfið sem hún var að fá í æð er ekki að virka nógu vel þannig að hún var sett á aðra tegund af sýklalyfi.  En því miður þá veldur það leiðindar aukaverkunum fyrir Ástu, ógleði og uppköst.  Vonum bara að það virki.  Ásta er ennþá að rjúka upp í hita og læknarnir eru ekki vissir um hvað það er sem veldur því, hvort það er gallblaðran eða eitthvað annað.  Þeir tala um hugsanlegan "tumor fever" sem kemur stundum hjá krabbameinssjúklingum, en ekkert er staðfest.Góðu fréttirnar eru þær að það náðist loks í lækninn í NY og áætlaður ferðatími Ástu út verður 6. maí n.k.  Hún hefur þá góðan tíma til að hressast og ná kröftum til að ferðast til NY.   Ástan okkar er komin með heimþrá eftir rúmlega viku spítalalegu og þráir að komast heim.  Sendum henni fallegar hugsanir, bænir og orku svo að það verði sem fyrst. kv.Arndís</description>
Ásta er ennþá á spítalanum
      <description>Smá fréttir frá Ástu.  Hún er ennþá á spítalanum, læknarnir telja að hún sé með krónískar bólgur í gallblöðru sem eru að valda þessum einkennum.  Hún er að fá 3 poka af sýklalyfjum í æð á dag sem vonandi ná að vinna á sýkingunni.Ekkert hefur heyrst frá NY en Ásta hefði heldur ekki fengið brottfararleyfi á sunnudaginn vegna veikinda.  Hún vonast til að læknirinn sinn nái sambandi við læknana í NY á mánudaginn.Við sendum Ástu baráttukveðjur og vonum að næsta helgi verði ferðahelgin hennar   fyrir hönd ÁstuArndís K.</description>
Fréttir af Ástu
      <description>Hæ,  Ásta bað mig að láta ykkur vita af sér.  Hún er ennþá á spítalanum, hún var að hressast í gær en rauk svo upp í hita í dag.  Ekki er ennþá vitað hvað er að valda hitanum (sýkingunni) en læknarnir vilja senda hana í nánari rannsóknir til að finna út hvað veldur.  Ekkert hefur ennþá heyrst frá læknunum úti í NY en það er föstudagur á morgun og kannski heyrist frá þeim þá.  Veikindi Ástu núna setja líka strik í reikninginn og óvíst hvort að hún verði ferðafær á sunnudaginn þó að grænt ljós komi frá NY.Takk fyrir fallegar kveðjur og hvatningarorð.fh. ÁstuArndís K.</description>
Kveðja frá Ástu Lovísu
      <description>Ásta bað mig að skila kveðju til ykkar og láta vita að hún var lögð inn á spítala í gær til meðferðar við sýkingu sem hún greindist með.  Ekki en enn búið að staðsetja sýkinguna.Við heyrum vonandi frá Ástu sjálfri fljótlega.  Á meðan langar mig að biðja ykkur að hugsa hlýtt til hennar.Kveðja,Arndís K.</description>
Kjaftasögurnar og NY
      <description>Í gær var ég virkilega reið og sár... Í dag er ég það ekki. Takk fyrir öll fallegu kommentin frá ykkur og takk fyrir að hafa trú á mér. Það tók mig smá tíma að róa mig niður í gær og sjá hlutina í réttu ljósi. Auðvitað á ég ekki að láta einhverja bitra manneskju hafa áhrif á mig.Ef viðkomandi hefur ekkert betra að gera í vinnutíma sínum enn að bögga mig þá er fyrirtækið í alvarlegum málum. Ég ætla ekki að nefna hvaða fyrirtæki um ræðir því það á ekki að bitna á fyrirtækinu í heild sinni þó svo að einhver starfsmaður þess eða örfáir starfsmenn kunni ekki almenna mannasiði.Spurningin er samt sú ætli yfirmennirnir yrðu ánægðir ef þeir vissu hvað ákveðin starfsmaður sé að gera á vinnutíma sínum og tekur laun fyrir á meðan ??? Hmmm ... Ég efast stórlega um það. Allavega yrði ég ekki ánægð.Því miður þá náðist ekki öll pappírsvinnan fyrir helgi þannig að ég fer ekki á morgunn. Þannig að næsti sunnudagur er því dagurinn sem við stefnum á... Vonandi kemur ekkert upp á með það.Maður er aðeins farin að taka allt með varúð því þá er auðveldara að höndla ef hlutirnir ganga ekki upp. Annars trúi ég því að allt hafi sinn tilgang.KV Ásta Lovísa</description>
Kjaftasögur ... Því miður :(
      <description>Því miður eru komnar í gang virkilega ljótar kjaftasögur um mig og vini mína... Ég er hreint út sagt orðlaus og ég er virkilega sár og reið því þetta er virkilega gripið úr lausu lofti !!!!!Sögurnar eru þær að ég sé að misnota góðvild þjóðarinnar og að ég sé óheiðarleg. Það ganga þær sögur um mig að ég sé með fólk á bakvið mig sem að borgi allt sem við kemur NY fyrir mig og ég sé með því að misnota góðvild ykkar. Þetta er ekki rétt ... Því  þeir peningar sem hafa safnast  á styrktarreikninginn fara í veikindin mín en ekki peningar vina minna. Það er greinilegt að hér á Íslandi megi maður ekki eiga vini sem eru þekkt andlit án þess að kjaftasögurnar fari á kreik.Ég vil fá að þakka ykkur öllum sem hafa sýnt mér stuðning á hvaða háttinn sem er. Þið sem að efist um mig og talið um mig á ljótan hátt ... Verið ekki að styðja mig og hættið að dæma fólk sem þið þekkið ekki.Ég er virkilega sár og reið núna. Þetta hefur haft það mikil áhrif á mig andlega að ég þarf að íhuga hvort að ég treysti mér að halda þessu bloggi áfram.Ein af athugasemdunum sem ég hef fengið ... Komið frá sama aðilanum sem að vinnur á þekktum vinnustað í tölvugeiranum:  Sæl Ásta, þú þekkir mig ekki og mér finnst ekki skipta máli hver ég er... Ég vinn á mjög stórum vinnustað og það hefur mikið verið rætt um þig og þín veikindi, en núna er kominn annar tónn í umræðuna. Eins og þú veist er Ísland ekki stórt land svo margir þekkja marga, og núna er heistasta umræðan þessa dagana að þú sért að notfæra þér afstöðu þína og þessa söfnun, þar sem heyrst hefur að þegar séu komnir fram aðilar sem ætla að borga flug og allan kostnað sem til fellur í NY og fólki finnst réttlátt að þú látir vita af þessu, Mér finnst rétt að láta þig vita af þessu, þannig að þú sjálf getir komið með þetta fram og sért heyðarleg,.. það er nóg fyrir þig að eiga í þessum veikindum þó ekki komi líka til leiðindar umtal um þig sem hægt er að stoppa strax áður en þetta verður verra.  Kveðja, með ósk um góðan bata  Frá:  Ókunnug, , </description>
Góðar fréttir ... :)
      <description>Þá er doksinn þarna úti búinn að hafa samband. Ég fer annað hvort út á sunnudaginn næsta eða þar næsta. Það fer eftir því hvort öll pappírsvinnan náist fyrir sunnudag... Það þarf víst að fylla út af því ég er ekki frá USA. Guuuð hvað mér er létt... Ég var farin að hafa áhyggjur af því að hann væri hættur við . Þannig að NY er það .Þetta eru ekki einu góðu fréttirnar sem ég hef að færa. Ég bað læknirinn minn um að kíkja á myndirnar mínar sem að voru teknar á skírdag þegar ég veikstist síðast. Hún hafði ekki séð þær því hún var ekki læknirinn sem var á vaktinni á deildinni þegar ég kom. Ég einhvern veginn trúði ekki alveg þessari ótrúlegu stækkun á svona stuttum tíma og vildi fá að heyra það frá mínum lækni líka. Hún kíkti á myndirnar mínar í dag... Hún staðfesti að það hefði verið stækkun til staðar á þessum stutta tíma en ekki svona svakaleg. Úffff þessi dagur er bara búin að vera æðislegur og bara allt að gerast. Loksins loksins loksins loksins fékk ég þannig dag . Ástan er ekkert smá glöð og ánægð í dag !!!Hamingjuknús á línuna ........Kv Ásta Lovísa</description>
Info
      <description>Ég heyrði í doksanum mínum í dag. Hún er búin að vera að reyna á fullu að ná í doksann þarna úti og náði svo loks í ritarann hans. Læknirinn úti ætlar að gefa sér einhverja daga til að fara betur yfir myndirnar mínar með fleiri krabbameinslæknum. Vonandi þarf ég ekki að bíða neitt rosa lengi eftir því. Ætla rétt að vona að hann fari ekki að hætta við heldur sé frekar að meta hvaða meðferð henti mér best. Í dag hef ég verið frekar róleg yfir þessu öllu.... sem betur fer. Ég fer í lyfjameðferð hér á landi á morgun eða hinn .. Betra að gera það fyrst ég er að bíða. Í dag skellti ég mér í heilun og í nudd.. Ohhh það var ekkert smá næs. Þurfti svooooo á þessu að halda til að halda geðheilsunni.Líkaminn minn er víst allur í vöðvabólgu og hnútum þannig að það bíður mín mikil vinna og píning  ... Jamm það kostar víst það ef ég ætla að komast í betra lag .Núna er ég frekar aum eftir átökin ... hehehe... og búin að ná mér í sæng og kodda og ætla að skríða upp í sófa.Þannig að ég kasta kveðju á alla línuna.........Kv Ásta Lovísa</description>
Biðin endalausa
      <description>Það er ennþá ekkert að frétta af NY... Þetta ætlar að verða biðin endalausa sýnist mér . Læknirinn úti er búinn að vera í fríi yfir páskana og því ekkert hægt að ná í hann. Mér hefur fundist hvern dagur vera endalaust lengi að líða.Vonandi hefur hann samband sem fyrst í vikunni.. Kvíða hnúturinn stækkar með hverjum deginum sem að líður. Í fyrsta sinn í þessu veikindaferli mínu þarf ég að taka verkjatöflur á hverjum degi. Ég er farin að finna þó nokkuð til .. Mér finnst þetta frekar erfið þróun. Mannsi finnst þetta eitthvað svo langt gengið þegar maður er byrjaður að þjást. Þetta var eitthvað svo fjarlægra þegar maður hvorki fann til né sá á manni að ég væri þetta alvarlega veik.Samt sem áður er ég ekki tilbúin í að gefast upp. Ég ætla áfram að reyna allt .. Ég sveiflast samt frekar mikið til og bardagahugurinn misjafn... En ég veit samt að ég get ekki gefist upp strax því þá flýti ég fyrir þessari þróun og ég vil það ekki. Það koma samt dagar sem ég er alveg við það að gefast upp en svo fatta ég hvað ég hef mikið að lifa fyrir og fer aftur í gírinn.</description>
Sjokk
      <description>Ég hef ekki góðar fréttir að færa.. Því miður þá virðist það vera fastir liðir þessa dagana . Ég er búin að vera með verki í 2 daga og gat ekki meir í dag og hafði samband við spítalann. Ég var send í rannsóknir og í sneiðmynd eins og ég fór í síðustu viku. Ég fékk hræðilegar fréttir í kjölfarið. Versti bletturinn í lifrinni stækkaði úr 3.5 cm í 4.4 cm á EINNI viku. Hinir blettirnir stækkuðu allir líka þannig að þetta er gríðaleg breyting á rétt rúmri viku. Ég get ekki lýst því með orðum hvernig mér líður núna. Ég held að ég hafi aldrei verið eins hrædd ... *GRÁT*.Það er eins gott að ég komist til NY sem fyrst... Vonandi bara strax eftir páska. Það verður allavega keyrt á fullt núna.. Það er greinilegt að það getur ekkert beðið.</description>
New York
      <description>Það er komið á hreint að ég fari út til NY að hitta læknana fljótlega eftir páska. Þá kemur betur í ljós hvernig framhaldið verður og hvernig þeir vilji stjórna meðferðinni. Ég þarf að hafa fylgdarmenn með... Til að ég skilji þetta læknamál allt þá ætlar Dr Daði.. minn elskulegi bróðir að fara með.Kv Ásta Lovísa</description>
Óvissa óvissa
      <description>Ennþá ríkir óvissuástand .... Samt er það nokkuð öruggt að ég fari til New York. Við erum að bíða eftir svari frá lækninum þar. Ég hef hugsað þetta í hringi og ég held að annað hvort fari ég út núna eða ekki. Núna hef ég líkamlega burði og þol til að taka á móti þessari erfiðu lyfjameðferð og þessu endalausa ferðalagi á milli .. Það segir ekki að ég hafi það eftir örfáa mánuði. Lifrin er ennþá ekki farin að sýna merki um bilun og þess vegna meiri ástæða. Ég held að ég eigi alltaf eftir að naga mig í handarbökin ef ég læt ekki verða af þessu. Ég sé mig í anda á líknardeildinni blótandi mér fyrir að hafa ekki látið reyna á þetta. Ég get þá allavega sagt að ég hafi reynt allt og þá verður maður kannski sáttari ef baráttan tapast.Ég fer ekki inn á spítalann á morgunn. Doksinn minn er hræddur um að það geti tafið fyrir þeim úti ef doksarnir hér á landi séu eitthvað að kukla í mér og dæla í mig lyfjum... Hún setti mig samt á krabbameinstöflur sem ég tek í 14 daga. Mér líður betur fyrir vikið að vita að ég sé þá allavegana á einhverju.Síðusti dagar hafa verið mér mjög erfiðir . Mér finnst rosalega erfitt að taka þessa ákvörðun. Ákvörðun um að vera fjarri börnunum mínum, vinum og ættingjum. Ég held samt að fyrsta heimsóknin sé lengst og svo komi ég út ca 1 sinni í mánuði. Ég veit reyndar ekki ennþá alveg hvernig þetta kemur til með að vera.Erfitt að fá svör frá þeim úti.. og ég held að ég fái þau ekki alveg nema að fara út og tala við þau augnlitis til augnlitis.Þetta er samt eitthvað sem að ég verð að gera.. Ég bara verð að athuga hvað þeir hafa upp á að bjóða .. Enda eitt virtasta krabbameinssjúkrahús í Bandaríkjunum. Það er rosalega erfitt að vera í þessari stöðu... Stöðu að vita að ekkert sé að virka hérna heima... Maður heldur heljargreipum í lífið en líður samt eins og maður sé komin með annan fótinn í gröfina. Þetta er hræðileg tilfinning !!! Ég á ennþá eftir að gera svo margt. Langar til að sjá börnin mín vaxa úr grasi, finna sér maka og eignast börn. Það er örugglega rosa stuð að vera amma .Langar til að fá að vera áfram með honum Didda mínum.. Höfum fengið allt of stuttan tíma saman. Langar að prufa að trúlofa mig og gifta mig einn daginn.. Æji ég er bara eitthvað svo ósátt við hlutskiptin mín núna. Það er fullt af gömlu fólki sem að þráir ekkert heitar en að fá að deyja. Fullt af fólki sem að tekur líf sitt og ég þrái ekkert heitar en að fá að lifa . Skrítið þetta líf !!Kveð í biliÁsta Lovísa</description>
Umfjöllun um mig í blöðunum þessa dagana.
      <description>Ég sá að það var grein um mig í DV og Morgunblaðinu þar sem verið er að hvetja fólk að styrkja mig svo ég komist út til NY. Mér finnst þetta rosalega fallega gert  ekki misskilja mig ... En málið er að það er ekkert 100% að ég fari til New York. Finnst því frekar óþægilegt að verið sé að styrkja mig á þessum forsendum ... Hvað ef það verður svo ekkert af þessu ???Ég er alls ekki að vera vanþakklát ... Mér finnst bara ekki rétt að hvetja fólk að taka þátt í þessu á þessum forsendum því þetta er ekki alveg komið á hreint.</description>
Hæ hó
      <description>Á miðvikudaginn þarf ég að fara inn á spítala. Þá verður stungið í nárann á mér og þaðan þrætt alla leiðina upp í lifrina og mér gefið háskammta skammtur beint í lifirina. Eftir það verður fylgst vel með mér... Skilst að ég verði undir strangri gæslu í ca 6 tíma á eftir og ef ég verð eitthvað lasin eftir þann tíma verð ég lögð inn yfir nótt. Þetta verður gert annan hvern miðvikudag í 3 skipti á meðan hlutirnir eru að koma í ljós hvort ég fari út til BNA eða hvað verður gert í framhaldinu. Allavega finnst mér mjög jákvætt að þurfa ekki að vera lyfjalaus á meðan verið er að vinna í mínum málum. Lyfið sem ég fæ er lyf sem ég hef verið á áður. Prufaði það reyndar mjög stutt því það var tekið af mér því krabbameinið hafði stækkað. Samt er ekki alveg komin nógu mikil reynsla á það og ekki má gleyma því að ég fæ mun stærri skammt en ég hef nokkurn tímann fengið áður. Síðast fékk ég miklar aukaverkanir af þessu lyfi þannig að ég er pínu kvíðin en samt þakklát. Betra að vera á lyfjum en án þeirra þegar maður er í þessari stöðu .Ég lenti í furðulegri lífsreynslu áðan. Ég kom heim og fann brunalykt en spáði ekkert í því og fór bara inn heima. Stuttu seinna kemur Helga barnapía til mín og kallar á mig að það sé kveiknað í ruslageymslunni. Ég hleyp niður og opna ruslageymsluna og á móti mér kemur þvílíkur reykur. Það logaði í einni ruslatunnunni. Ég, Kristófer Daði, Helga og vinkona hennar gripum garðslönguna og byrjuðum að sprauta á eldinn á meðan við biðum eftir slökkviliðinu. Þegar þeir mættu á staðinn vorum við búin að slökkva í tunnunni þannig að þetta náði aldrei að verða neitt alvarlegt. Eins gott að við föttuðum þetta á þessum tímapunkti því að eldurinn var byrjaður að teygja sig upp í rörið sjálft. Ég fékk reyndar dúndrandi hausverk eftir þetta allt saman.. Enda ekki gott að anda að sér þessum ógjeðslega reyk hvað þá þegar maður er viðkvæmur fyrir..... Enn þetta endaði allt saman vel sem betur fer .Grísirnir mínir, Diddi og Lena verða hjá mér um helgina þannig að það verður stuð á bæ. Gaman að fá að hafa þau áður en hasarinn byrjar á miðvikudag.Hafið það gott um helgina....Kv Ásta Lovísa</description>