Í dag er eitt ár liðið frá því að þú kvaddir þennan heim með reisn. Minningin um hetju lifir og enn í dag lesa margir bloggfærslur þínar á heimasíðunni. Þú heldur áfram að hafa áhrif á fjölda fólks daglega og þín er sárt saknað. Það líður ekki sá dagur að við hugsum ekki til þín með væntumþykju og aðdáun. Langaði að setja inn mynd af fallega leiðinu þínu enda hefurðu og verður alltaf englastelpan okkar.