Færslur: 2007 Febrúar

28.02.2007 17:42

Klipp klipp

Var að enda við að skríða heim .
Mín elskulega mútta var að lita á mér hárið og klippa það. Engar stórar breytingar þar á ferð.... bara að láta lita í rótina og fríska aðeins upp á þessa larfa. Já ég segi larfa því hárið á mér er ekkert smá skrítið eftir að ég byrjað í lyfjameðferðinni. Það bara einhvern veginn hangir þarna eins og dauð lufsa .. hehehe .. en hey ég er allavega með hár og það eru ekki allir sem að geta sagt það.. þannig að ég skal sko vera þakklát fyrir það.

Ég hitti systur mína í hádegismat í dag niðri í Laugum ... *slef* ... ekkert smá góður matur þar. Eftir matinn keypti ég mér aftur kort í Laugum.... Íhaaaaa.... Átti kort þar áður en ég veiktist og varð að hætta þegar ég veiktist. Mín gefst ekki svo auðveldlega upp þannig að ég ákvað að skella mér bara aftur í ræktina. Ég mun ekki taka mikið á því ... Bara fá svo hreyfingu í kroppinn og komast aðeins út.

Ég var ekki búin að segja ykkur hvernig ég varð eftir síðustu lyfjameðferð.... Hmmm ... God ... Ég varð svo veik um kvöldið að ég hélt ég væri að syngja mitt síðasta. Ég hef aldrei í mínu lífi fengið eins mikin hausverk. Ég lá og gat mig hvergi hreyft .. Fékk hita, vöðvaverki og læti. Ég endaði með að hringja í bróður minn til Svíþjóðar um miðja nótt því ég vissi ekki hvað væri eiginlega að gerast. Svona var ég þar til í morgunn ... Þannig að tveir dagar fóru í það að liggja og sofa og sofa aðeins meira í móki... Mjög skemmtilegt eða þannig.
Ég hringdi á bráðarmóttökuna í gær og doksinn á vaktinni talaði um að þetta væru aukaverkanir af nýja lyfinu. Ég ætlaði ekki að þora að hringja því ég var svo hrædd um að vera tekin af lyfinu og það er ekki gott fyrir konu í minni stöðu. Ég vil frekar þjást ef þetta lyf virkar á krabbann.
Ég verð bara að trúa því að fyrst ég varð svona veik af lyfinu að þá hlýtur krabbafrumurnar mínar að hafa orðið það líka  *krossafingur*.

Allavega þá er hljóðið í mér gott í dag. Er pínu eftir mig eftir leguna síðustu daga en ég er aftur komin á ról .


Kv Ásta Lovísa

26.02.2007 19:35

Jæja ... Im back

Jæja ... þá er ég komin aftur :)

Ég verð að viðurkenna að ég lenti frekar langt niðri eftir síðustu fréttir.... Enn ég hef ákveðið að rífa mig upp og halda áfram. Ég ætla ekki að leyfa mér að gefast upp ... Ég bara get það ekki!

Ég fór í fyrstu lyfjameðferðina af þessu nýja lyfi í dag. Varð pínu sloj af ofnæmislyfinu sem þarf að gefa mér með og ég svaf og svaf því á spítalanum. Nýja lyfið heitir Erbitux og virkar mjög svipað og Avastinið sem ég batt svo miklar vonir við. En það er öðruvísi upp byggt og er því möguleiki að það virki fyrir mig þó að hitt hafi ekki gert það. Núna verð ég að taka það í 6 skipti og þá verða teknar myndir að nýju. Þá verður eitthvað að hafa breyst.. Þetta getur ekki haldið svona áfram ef ég ætla að halda lífi. Doksinn minn sýndi mér myndir í dag af meinvörpunum... Frekar skrítið að sjá þetta....Það er sem betur fer ennþá slatti af vef sem er heill og óskemmdur. Þannig að lifrin mín starfar ennþá vel þrátt fyrir meinvörpin.

Þórdís Tinna mín fékk frábærar fréttir í dag. Hún er líklegast læknuð af sínum krabba... Fannst einn blettur eftir í lungunum en doksi heldur að það sé ekkert endilega krabbi þar á ferð og ætlar að fylgjast vel með þessu. Þórdís mín ég gleðst innilega með þér og vona að ég fái kraftaverk eins og þú einn daginn. TIL HAMINGJU SNÚLLAN MÍN !!!

Ég gleymdi alltaf að þakka Flugleiðum fyrir ferðina til New York. Þeir voru svo sætir við mig að þeir buðu mér og Didda út til að komast í nýtt umhverfi. Flugleiðir þið eigið heiður skilið fyrir þetta ... Get ekki fundið orð yfir hversu þakklát ég er. Einnig var það einhver sem sendi mér íslensku útgáfuna af bókinni með Lance Armstrong. Hún kom með póstinum með slaufu utan um en ekkert kort þannig að ég veit ekki hver færði mér hana ... Þú sem sendir mér hana takk æðsilega fyrir :)  Þið hin sem hafið styrkt mig með fallegum orðum eða á annan hátt knús líka á ykkur öll. Það er alveg á hreinu að það er til fult af góðu fólki á íslandi.

Knús og klemm

Kv Ásta Lovísa

23.02.2007 14:49

Smá skrif

" ... Ég er ekki gefin fyrir uppgjöf. Ég berst þar til ég fell. Þetta er styrkur sem mér er í blóð borinn .... Það sem máli skiptir er að trúa á að meðan þú getur dregið andann eigirðu von. (Cicely Tyson)

Ég rakst á þetta gullkorn í bók sem mér var einu sinni fært. Mér þykir rosa vænt um þessi orð.. og þau eru svo rétt eitthvað.

Síðustu tveir dagar hjá mér hafa verið HELL. Ég hef ekki treyst mér að skrifa hér inn. Ég get varla lýst því hvað þetta kom mér á óvart. Ég virkilega trúði því að ég væri að lagast. Ég hafði ekki þurft að taka verkjalyf lengi, var með mun meira þrek og var farin að bæta aðeins á mig og ég tala nú ekki um hvað blóðprufurnar lofuðu góðu. En á meðan kraumaði krabba púkinn áfram og gaf frá sér fölsk skilaboð. Þetta segir mér samt hvað hugurinn ber mann langt. Ég virkilega trúði því að ég væri að lagast og með því kallaði ég fram betri líðan. Síðustu tvo daga eftir að ég fékk fréttirnar hef ég verið langt niðri og allir verkir komu aftur fram. Ég hef því þurft að taka inn verkjalyfin mín aftur og mér finnst ég vera stanslaust þreytt... VÁ það er greinilega margt skrítið í kýrhausnum.

Ég verð að vera hreinskilin og segja að von mín um að fá líf mitt aftur hefur minnkað eftir síðasta sjokk. Meinvörpin mín voru á ca 5-10% stóru svæði í lifrinni en hafa náð að fjölga sér í  ca 20% núna . Það lofar ekki góðu og ef þessi hraða þróun heldur áfram þá veit ég alveg að ég á ekki langt eftir. Ég er ekki að segja að ég sé alveg búin að gefast upp en ég er bara stödd núna í miðju sorgarferli og svartsýnispúkinn er sífelt að berja mig í hausinn.

Enn og aftur þurfti ég að taka erfiða ákvörðun með börnin. Núna er ég að fara að byrja í mjög agresívari meðferð sem verður í hverri viku núna en ekki aðra hvora eins og áður. Það leiðir af sér minni orku og minna þrek hjá mér til að geta hugsað um börnin mín. Næstu 6 vikurnar verða mjög erfiðar og er það því öllum fyrir bestu að þau verði bara hjá pöbbum sínum. Ég vil ekki bjóða þeim upp á að horfa upp á mig svona veika og ég vil frekar fá að hitta þau um helgar eða þá daga sem ég er hress. Strákurinn minn bara tók því ekki vel að horfa upp á mig þegar ég var sem verst og forðaðist að vera heima hjá sér. Þannig að ég get ekkert annað .

Takk fyrir allar fallegu kveðjurnar frá ykkur og mailin. Ég frétti af því að það gengi mail um að kveikja á kertum fyrir mig kl 20 í kvöld ... Ég er alveg orðlaus hvað fólk getur verið yndislegt . Takk enn og aftur fyrir allt sem þið eruð að gera fyrir mig.

Kv Ásta Lovísa

 

21.02.2007 14:19

Bad news ... once again :(

Jæja þá fékk ég víst enn einn skellinn .

Sjúkdómurinn minn hefur versnað því miður. Meinvörpin hafa öll stækkað um einhverja mm sem er frekar mikið og ég er með stækkun í eitlum í maganum *GRÁT*. Það þarf að fylgjast með þessum eitlum ef þeir stækka eitthvað meira þá þarf að skoða þá nánar og athuga hvort að það sé krabbi í þeim líka .. en allavega verður ekkert gert neitt í þeim málum í bili..... Úfff öll familían er í sjokki og ég get ekki lýst því hvernig mér líður núna. Þetta ætlar greinilega að verða erfiðara en ég hélt og ég verð bara að vera hreinskilin að ég er orðin pínu svartsýn á framhaldið. Ég veit að ég má það ekki ... Enn halló það eru til takmörk hvað maður getur endalaust tekið við. ... Æji vonandi næ ég að rífa mig upp úr þessu og halda áfram að berjast ... Er líklega bara að syrgja þessar fréttir núna.

Öllum lyfunum mínum verður skipt út. Ég fæ ekki lengur Avastin lyfið sem ég batt svo miklar vonir við. Ég bara skil þetta ekki því krabbameinsvísarnir voru að lækka. Málið er að krabbameinsfrumurnar eru svo klókar að þær finna alltaf leið gegnum allt og í mínu tilfelli þá fóru þær að senda röng skilaboð frá sér eins og ástandið væri að lagast þegar það er það ekki heldur öfugt. Avastinið virkaði líka fyrst því í nóvember þá var minkun en frumurnar hafa náð að mynda þol við því þannig að það hætti að virka. Lyfið sem ég hafði tröllatrú á er núna farið .

Núna tekur við ný og erfiðari meðferð. Ég þarf að fara í lyfjameðferð í hverri viku núna og fæ ekki lengur fröken dælu. Eftir 6 vikur verða aftur teknar myndir. Þetta er mjög strembin meðferð. Tenerife ferðin sem ég vann fyrir að vera valin íslendingur ársins þarf ég að fresta. Við áttum að fara í byrjun mars en ég má ekki fara út ..... Sem betur fer þá erum við nýkomin heim frá Svíþjóð þannig að vonandi verða krakkarnir ekki rosa svekkt.. Þau eru jú bara börn og hugsa kannski ekki alveg hvað sé best í stöðunni.

Vá mér líður hræðilega núna.... Sit bara og skæli. Mig langar að biðja ykkur sem tengjast mér og eru í sambandi við mig að gefa mér pínu tíma til að melta þetta. Ég á erfitt með að tala um þetta núna og ég vona að þið skiljið það. Gefið mér smá tíma til að syrgja þetta og fá lífsviljan aftur. Mig langar svo sannarlega ekki að deyja og er pínu hrædd núna.

20.02.2007 18:30

Rannsóknirnar

Hæ snúllurnar mínar .

Þá er rannsóknar- og stóri lyfjameðferðardagurinn búinn. Hann gekk rosa vel. Ég hef greinilega misskilið doksann minn eitthvað... Hélt að ég ætti að fara í MRI skann en fór í CT skann. MRI skanninn sýnir lifrina betur.. en CT skanninn sýnir stöðu mála í öllu kviðarholinu betur. Þannig að CT skanninn er því betri núna. Þannig að ég slapp við að fara í þetta leiðinda rör og fór í miklu minna rör sem maður fær ekki innilokunarkennd í.... LUCKY ME !!

Á morgunn kl 11 tekur svo alvaran við.... Er ég að versna eða er ég að skána ??? Það er stóra spurninginn. Núna líður mér eins og svín á leið til slátrunar.... án gríns . Er ekkert smá stressuð. Ég mæti semsagt þarna með mömmu, pabba og honum Didda mínum.... Úfff ég verð bara að segja að ég er að skíta á mig úr stressi. Ég verð samt bara að vona það besta og vona að ég fái að lifa lengur. Ég er ekki til í að yfirgefa þetta líf neitt á næstunni .. Það er alveg á hreinu. Ég hef allt of mikið til að lifa fyrir. Ég á 3 yndisleg börn og er nýfarin að vera með manni sem ég sé ekki sólina fyrir og elska. Það er bara allt of margt sem mig langar til að gera með þeim öllum ... Ætla ekki að gefast svo auðveldlega upp !!!

Ég er pínu slöpp í dag. Ég bað doksa um að minnka sterana aftur í skammtinn sem ég var á í upphafi. Var farin að blása allt í einu svo út af þeim og það er ekki eitthvað sem mig langar og plús ég varð svo hyper ofvirk. Vil frekar vera pínu slöpp þessa daga og hafa það bara kósý heima á meðan.

Ég fer á fundinn á morgunn kl 11 og svo í lyfjameðferðina kl 13. Þannig að ég mun skrifa inn fréttirnar við fyrsta tækifæri eftir það.

Það eru svo margir að byðja mig um að fá að sjá NY myndirnar þannig að ég ætla bara að skella nokkrum af þeim hér inn. Tók yfir 400 myndir.. heheh... Er ekki alveg að nenna að setja þær allar en þið fáið allavega nokkrar útvaldar. Er að vinna í því .

knús og klemm

Kv Ásta Lovísa

19.02.2007 19:50

Komin heim :)

Hellóóó... Mín er bara komin aftur heim .

Ferðin heim gekk rosa vel.. Vaknaði reyndar um hálf fjögur í nótt að íslenskum tíma og gat ekki sofnað aftur og fór því á fætur.... Er því rosa lúin núna vegna svefnleysis, út af ferðalaginu í dag og veikindum Írenu upp á síðkastið. Ferðin heim gekk rosa vel og vorum við mætt á klakann rétt fyrir kl 15. Krakkarnir eru nú öll farin til pabba sinna og á morgun er stóri dagurinn hjá mér. Ég ætlaði út að gera eitthvað skemmtó í kvöld en meika það bara ekki núna. Ætla bara að sofna snemma og vera hress fyrir allar rannsóknirnar og lyfjameðferðina. Takk fyrir ábendingarnar fyrir stóra daginn... Ein benti mér á að reyna að sofna en það má víst ekki í þessu tæki... Maður verður að halda sér vakandi ... En ég mun prufa að ýminda mér að ég sé stödd á einhverjum notó stað .

Ef þið sendið mér einkaskilaboð í gegnum bloggið mitt þá get ég ekki svarað ykkur tilbaka. Vefurinn býður ekki upp á það því miður. Þannig að ef þið viljið ná í mig verðið þið að senda mér mail gegnum hotmailið mitt: astalovisav@hotmail.com ..... Það eru einhverjar búnar að vera að biðja um lykilorð á síðu krakkana minna út af NY myndunum. Sendið mér bara mail þá læt ég ykkur fá lykilorðið. Einnig hafa einhverjir verið að spyrja mig afhverju ég tók númerið af styrktarreikningnum mínum út ... Það er út af bögg athugasemdum sem ég var að fá ... Þannig að ég tók þetta bara út .

Allavega þá ætla ég að láta þetta duga í bili... Er að tapa mér úr stressi núna og ætla því að koma mér upp í sófa og glápa á eitthvað skemmtilegt.

Knússss á ykkur öll... Læt vita á morgun hvernig rannsóknirnar gengu.

Tjá tjá

Kv Ásta Lovísa

18.02.2007 10:14

Sunnudagur til sælu :)

Þá er komin sunnudagur og á morgun komum við aftur á klakann .

Heilsufarið á liðinu er svona upp og ofan .. Írena mín er ennþá hóstandi. Þetta hlýtur að fara að ganga yfir.... Vonandi. Greyið litla stendur alveg á öndinni þegar hún byrjar. Held svei mér þá að þetta sé einn svæsnasti hósti sem ég hef heyrt og séð.

Í dag verður haldið upp á afmæli tvíburana hans Daða bró. Von er á gestum og boðið verður upp á fullt af glæsilegum veitingum. Ekki slæmt að vera viðstödd .. hehehe... Elska kökur og heita rétti *slurp* .

Á þriðjudaginn er svo rannsóknin *stress*.... Úfff ég ætla pottþétt að gera eitthvað skemmtilegt annað kvöld sem að dreyfir huganum. Fer reyndar líka í stóru lyfjagjöfina þennan dag þannig að það verður nóg að gera. Rannsóknin felur í sér lugnamynd og MRI. Ég þarf að fasta frá miðnætti og drekka eitthvað efni um morguninn. Fer svo í þetta MRI tæki... sem er tæki sem ég hræðist lang mest af öllu tækjunum sem ég þarf að fara reglulega í ...hehhehe... Það er svo scary. Maður þarf að liggja allur inn í þvílíkt mjóu tæki sem gefur frá sér þvílík læti og maður er ólaður niður. Þannig þarf maður að liggja aðeins með tásurnar út... allt upp í eina klst *HROLLUR*.... Fer eftir því hversu vel gengur... Ég sem er haldin innilokunarkennd dauðans á ekkert voðalega auðvelt með að liggja svona óluð niður í svona litlu rými .. En maður verður víst að láta sig hafa það svo maður getur fengið að vita stöðu mála.

Held svo að fjölskyldufundurinn sé á miðvikudag. Þá geta mínir nánustu mætt með mér og þá fer Halla yfir málin. *Ennþámeirastress*

Tjá tjá

Kv Ásta Lovísa

 

16.02.2007 17:29

Ástand á heimilinu

Jahá það er sko búið að vera ástand á heimilinu síðasta sólarhriginn. Írena var svo lasin í gærkvöldi ... Hóstaði og hóstaði og endaði með að æla yfir rúmið okkar  . Hún hóstaði svo mikið í nótt að ég þurfti að sitja með hana sofandi í fanginu og ég sjálf sofnaði því ekki fyrr en um 6 í morgun. Ég er með herbergi í kjallaranum og kunni ekki við að vekja liðið uppi. Mamma var reyndar ekkert voða kát með mig að ég skyldi ekki hafa vakið hana og beðið hana um að hjálpa mér.. hehehehe... Ég er svo stolt kona. Þannig að mamma rak mig til að leggja mig í dag þannig að það var allt í lagi og svefninn því endurheimtur .

Mamma er komin með hita, Brynjar er líka lasinn og Sara og Daði hósta og hósta líka ... Óhætt að segja að það sé ástand á heimilinu .

Ég lét sprauta mig fyrir inflúensunni.. Hef því sloppið hingað til og vonandi geri ég það áfram 7,9,13 ..... Ekki gott ef ég fer að veikjast því mitt ónæmiskerfi er mun veikara.

Daði var að skreppa í Halmstad að ná í smá Thai mat ... *slef* get ekki beðið og svo er stefnan á að sukka yfir ritz kexi og ostum seinna í kvöld og það er aldrei að vita nema maður fái sér smá slef á rauðvíni með .. heheh... og ég sem drekk nánast aldrei . Halla doksi var búin að gefa mér grænt ljós á smá rauðvín.

Hälsningar från Sverige

 

14.02.2007 21:19

Kveðja smeðja

Dagurinn í dag var rosa fínn. Skelltum okkur með allt liðið til Halmstad. Þar var farið í BR dótabúðina og öll börnin fengu að kaupa sér smá dót .

Það er rosa gott að vera hérna. Búið að dekra við okkur þvílíkt og við fengið að borða þvílíkt góðan mat. Daði og Elva alveg að tapa sér í gestrisninni .

Heilsan hefur alveg verið til friðs. Ég er svei mér þá farin að hallast að því að það geti bara ekki annað verið en að ég fái góðar fréttir í næstu viku. Finnst samt skrítið að ég hef aðeins verið að blása út. Skildi ekki alveg afhverju svona hratt og bara allt í einu... en svo benti Daði mér á það að ég hef verið að fá tvöfaldan stera skammt síðan milli jóla og nýárs og þeir geta haft þessi áhrif. Allt í einu eru allar gallabuxurnar mínar farnar að þrengja þvílíkt og mér liðið eins og strekktum kjúkling ... hehhhe... ég veit að Halla doksi er pottþétt ánægð með það... Hún hefur verið að reyna að fita mig...  en ég verð bara að segja að mér finnst þetta aðeins tú much á svona stuttum tíma .

Það er eitt sem mér finnst pínu skrítið eftir að ég veiktist. Er svo oft að lenda í því að fólk í kringum mig sé að segja mér eitthvað sem því finnst erfitt og svo bara allt í einu sagt: " Hvað er ég eiginlega að kvarta.. Þú ert nú að berjast fyrir lífi þínu". Ef ég má vera hreinskilin þá langar mig að vera ennþá sú Ásta sem ég var áður en ég veiktist. Ég vil vera þátttakandi í lífi minna nánustu  og vina.... alveg sama hvort það sé þegar allt gengur vel eða ekki. Ég vil fá að vera til staðar og fá að hlusta eins og áður. Þó ég sé veik segir ekki að mitt líf þurfi að vera á einhverjum hærri stalli en líf annarra. Ég vil lifa sem eðlilegast og vil að fólk komi fram við mig á þann hátt.... Leyfið mér að vera sú Ásta sem ég var áður og leyfið mér að vera til staðar fyrir ykkur eins og áður. Er það díll ???

13.02.2007 15:26

Sverige

Hæhæ allir .

Þá erum við Svíþjóðarfararnir komnir á leiðarenda . Þetta var ansi langt ferðalag... Flugið tók um 3 tíma og svo lestin rúma 2 tíma. Þetta var allt saman þvílík upplifun fyrir börnin enda fyrsta utanlandsferðin og líka fyrsta flugferðin. Þau stóðu sig ekkert smá vel.. Er eiginlega hissa á því hversu góð þau voru. Lillan mín yngsta fékk reyndar hita í gærkvöldi .. Er víst komin með í eyrun.... en mömmuhjartað gat ekki skilið litla greyið eftir á Íslandi þannig að hún fékk bara stíla og fékk að fara með í för .

Heilsan mín er bara góð. Er pínu lúin eftir allt þetta ferðalag en ekkert annað ... Þannig að ég er bara mjög sátt.

 Loksins komumst við til Daða bróðir og fjölskyldu og mig langar að þakka ykkur öllum fyrir stuðningin ykkar. Ég verð ykkur ævinlega þakklát .

Kveðja frá Ástu og Co í Sverige 

 

 

11.02.2007 18:24

Myndir

 

Komnar myndir af New York ferðinni inn á heimasíðu krakkana . Eru reyndar svakalega margar.. hehehe... á eftir að laga aðeins til í þeim. Mér finnst þessar myndir of persónulegar til að setja þær hingað inn miðað við gestafjölda sem ég fæ inn á síðuna á dag. Þið sem hafið ekki lykilorðið og langar að skoða þær .. Megið senda mér línu.

10.02.2007 17:58

Laugardags blogg

Howdy .

Er ennþá með þreytu veikina... Held ég hafi bara ekki verið eins úthaldslaus leeeengi. Vil samt trúa því að allt sé í orden .. Allavega eru lifrartölurnar að lækka sem er rosalega gott ...og ég vil trúa því að allt sé í lagi á öðrum stöðum. Er reyndar pínu kvefuð og lungun eitthvað að hrella mig í öndun þegar ég er úti .. er reyndar með Asthma þannig að ég held að þetta vinni allt saman.... Eins gott að lungun mín séu hrein .. úfff vil eiginlega ekki hugsa til þess að eitthvað gæti farið að krauma í þeim. Neibb Ásta Lovísa það skal bara ekki gerast !!

Ég finn hvað kvíðinn í mér magnast eftir því sem nær dregur stóra deginum. Jamm stóri dagurinn 20. febrúar og niðurstöður strax daginn eftir. Ég hef alltaf fengið slæmar fréttir þegar fjölskyldufundur er haldinn þannig að maður er orðin þvílíkt paranoja. Lifrartölurnar mínar eru samt að lækka .. en þær náttúrulega segja bara til um stöðu lifrarinnar en ekkert annað. Ég SKAL fá góðar fréttir á þessum fjölskyldufundi til tilbreytingar. Það væri nú ekki leiðinlegt . Úfff mér finnst samt frekar langt í þetta ennþá og ég þjáist af strax veikinni á hæsta stigi. Finnst þessir dagar núna pínulítið erfiðir.. ef ég má vera hreinskilin . Er alltaf að reyna að vera jákvæð en stundum þá bara tekst mér það ekki alltaf... En hey ég er ekki fullkomin og meira að segja langt frá því .

Það sem heldur mér samt við efnið er Svíþjóðarferðin til minn elskulega bróðir. Erum að fara í hana núna í vikunni þannig að það ætti að halda mér við efnið og dreifa huganum mínum eitthvað frá stóra deginum.. Íhaaa. Vildi bara láta ykkur vita upp á bloggið að gera. Veit ekki hversu mikið ég kemst í tölvu þar þannig að ég veit ekki hversu mikið ég get bloggað eða hvort ég get bloggað yfir höfuð. Það verður bara að koma í ljós. Vinkona mín verður hér heima að passa hundinn og heimilið þannig að það er aldrei að vita nema ég fái hana bara til að skella inn frétttir af okkur .

Tjá tjá

KV Ásta Lovísa

 

09.02.2007 12:01

Hæ hó

Þá loksins drattast ég til að blogga .

Lyfjavikan gekk bara ágætlega fyrir sig.... Varð pínu lasin af lyfjunum þarna á mánudags og þriðjudagskvöldið. Er líka búin að vera frekar þreytt og þurfa að sofa frekar mikið en það er örugglega bara eðlilegt þegar maður er svona ný komin að utan og frá landi með svona mikinn tíma mismun.

Ég er ennþá í skýjunum yfir tölunum mínum. Ekki slæmt að lækka um 10 í hverri lyfjaviku sem maður kemur. Vonandi halda þær áfram að lækka.

Myndirnar verða svo teknar 20. febrúar og þá verður fjölskyldufundurinn 21.febrúar. Þá fæ ég að vita nákvæmlega hvernig allt er hjá mér. Mér finnst þessir fundir alltaf pínu erfiðir. Líður stundum eins og ég sé með lífið í lúkunum... Kannski ekki skrítið þar sem það er jú verið að ræða líf mitt og áframhaldandi horfur. Úfff mér finnst samt alltaf erfiðast að biða. Vil alltaf ljúka öllu svona strax af .. hehehe... en það er betra að leyfa x6 skiptinu af Avastininu að virka fyrst.

Er ennþá pínu þreytt og lúin þannig að þetta blogg mitt verður líka frekar stutt í dag .

Tjá tjá

Kv Ásta

06.02.2007 18:07

Góðar fréttir :)

Hæ öll .

Krabbameinsvísarnir lækkuðu meira .....íhaaaaaa.

Cea í blóðinu sem er krabbameinsvísirinn hefur hæst farið í 198 hjá mér og þannig var hann í þar síðustu meðferðarvikunni minni. Síðast lækkaði hann í fyrsta sinn frá upphafi og fór niður í 190 og núna í dag fékk ég að vita að hann er kominn niður í 180. Hjá eðlilegri manneskju er talan á bilinu 0-4 þannig að talan mín er ennþá há en samt á niðurleið.

Svo er einhver önnur tala líka sem heitir (Ca 19.9)) sem var 1800 hjá mér enn er komin niður í 956. Ekki slæmt það .

Þannig að veikindinn mín eru vonandi að lagast eitthvað. Myndirnar eru samt nákvæmari en þessar tölur ... Vonandi staðfesta þær þessa góðu þróun. Fer í rannsóknina 20. febrúar og fjölskyldufundurinn haldinn daginn eftir og þá fæ ég að vita nákvæmlega stöðuna á mínum veikindum *stress*.

Er pínu lúin núna þannig að ég ætla að hafa þetta stutt í dag og ætla að reyna að sofna pínu. Veit bara að mörg ykkar voru spennt að fá að vita um þessar tölur þannig að ég varð að setja smá inn. Vona að þið skiljið að ég get bara haft þetta stutt í dag.

Knús og klemm

KV Ásta Lovísa

05.02.2007 23:01

Lyfjameðferðin

Þá er dagurinn í dag að verða búinn. Ég mætti eldsnemma í morgunn .. Byrjaði reyndar á því að fara með bílinn minn í viðgerð. Lóa vinkona mín var svo sæt í sér að keyra mig með gripinn á verkstæði og þaðan á spítalann. Lenti í rosa bið. Fékk ekki lyfin fyrr en eftir hádegi ... eitthvað mikið að gera hjá apótekinu eða eitthvað komið upp á.... Þannig að ég var ekkert smá lengi í dag og var orðin frekar lúin þegar ég komst loks heim. Rosa gott að hafa Þórdísi hjá mér ... Ekki samt meint þannig að ég óski einhverjum veikindi... Heldur var það félagsskapurinn sem ég er að tala um.. Við sátum reyndar að drepast úr hungri snúllurnar .. heheheh.. Báðar komnar með upp í kok af samlokunum þarna . Er reyndar ekki búin að vera með neina lyst í dag. Er búin að vera rosalega óglatt ...þannig að þær þurftu að gefa mér auka ógleðislyf. Frekar skrýtið því ég fékk auka stera skammtinn og auka ógleðislyfin eins og ég fékk fyrir New York ferðina. Svona er þetta bara .. maður getur aldrei vitað fyrir fram hvernig maður verður hverju sinni. Stella mín kom til mín í kvöld og hjálpaði mér að setja í vél og pantaði pizzu handa okkur. Gott að fá hjálpina þegar maður er svona slappur. Gat reyndar sama og ekkert borðað .. Borða bara tvöfalt á morgunn .

Ég hitti Höllu doksa í morgunn. Hún þarf að fara á fund um kl 15 á morgunn þannig að hún var ekki viss um að niðurstöðurnar úr krabbameinsvísunum verði komin fyrir þann tíma. Kemur í ljós... annars er það bara á miðvikudaginn. Við töluðum um rannsóknirnar .. Hún vildi helst bíða með að senda mig í þær þar til ég kæmi heim frá Svíþjóð með börnin. Ég sagði við hana að mér fyndist biðin svo erfið og að ég vildi fara í rannsókninar áður og fá fjölskyldufund líka þannig að hún ætlaði að láta það eftir mér. Þannig að hún hringdi niður í röntgen og reyndi að fá tíma áður en því miður var ekkert laust .  Ég verð því bara að sætta mig við það að þurfa að bíða.. Ég bara hata að bíða !!! Svo vont að vita ekki hvort ég sé að versna, stend í stað eða að lagast. Ég hef í raun meiri áhyggjur af því að krabbinn sé að dreifa sér. Mér finnst meira skipta máli hvort hann sé farinn að dreyfa sér heldur en hvort meinvörpin hafi minnkað, staðið í stað eða stækkað. Æji ég veit ekki er með rosa hnút í maganum ... Verð alltaf svona þegar styttist í svona mikilvægar niðurstöður. Verð bara að reyna að sleppa tökunum á þessu á meðan ég þarf að bíða. Þannig að þegar ég kem tilbaka þá er það stór lyfjameðferð. Mæti á fyrsta deginum sem er alltaf lengstur og tek lyfin með mér í lugnamyndatöku og í skanna sem að sýnir öll lífærrin í kviðarholinu. Þetta er mjög nákvæmur skanni sem segir til um fjölda meinvarpa, stærð, staðsetningu og lögun. Úfff púff !!!

Ég fékk Írenu mina á laugardeginum. Snúllan mín var orðin nógu hress til að koma til mömmu sinnar. Helgin tók á ... en ég kann samt svo að meta þennan tíma með þeim. Litla snúllan mín labbaði til mín þegar verið var að sækja hana, knúsaði mig og sagði: " Mamma ég elska þig" *Grát* Fyrsta sinn sem hún segir svona að fyrrabragði og vá ég bara táraðist. Litla snúllan hefur fundið á sér að mömmu vantaði knús og falleg orð.... Litla mömmu hjarta pínu viðkvæmt.. Æji  þessi börn eru yyyndisleg... Geta verið erfið en ég veit eiginlega ekki hvar ég væri án þeirra.

Ég hef stundum spáð í því hvort væri verra að deyja frá ungum börnum sínum eða deyja án þess að fá að upplifa hamingjuna við að eignast barn/börn. Svei mér þá ég veit eiginlega ekki hvort er verra eða hvort hægt sé að segja að annað hvort af þessu sé verra. Hvað finnst ykkur ??

Þetta er eitt af mörgum heilabrotum mínum. Ég spái svo mikið í öllum svona hlutum. Kannski ekki skrítið þegar maður er alltaf með dauðann í eftirdragi. Ég er samt ennþá staðráðin í að reyna að tækla hann. Vonandi tekst mér það. Ég var reyndar að heyra í dag af nýju lyfi í Bandaríkjunum sem verið var að uppgötva sem er að virka vel á nokkrar tegundir krabbameina .. Þar að meðal ristilkrabba. Það er akkúrat svona fréttir sem að halda mér á lífi. Ég skal þrauka nógu lengi þar til þeir hafa fundið eitthvað sem læknar mig eða lengir líf mitt í langan tíma. Ég er ekki til í að deyja og svo kannski finna þeir lyf ári seinna sem hefði getað læknað mig... hehhee... Það má ekki . Ég sendi Höllu linkinn og spurði hvort þetta væri möguleiki að ég gæti fengið að prufa það. Er ekki búin að fá svar við því en vonandi fæ ég það á morgunn. Allavega vona ég eftir svari um að hún allavega skoði þetta. Annars er ég alveg ákveðin í því að fara til Bandaríkjana á þekktasta krabbameinssjúkrahús í heimi og fá annað álit. Ég treysti Höllu 100% .. Hún er alveg frábær það er ekki málið en þetta er mitt líf og ég er ekki tilbúin að taka neina sjénsa. Mér finnst Ísland frekar eftir á í svo mörgu sem viðkemur krabbameinslækningum. .... Halló við búum á klaka í rassgati og erum ekkert smá einangruð. Við erum t.d undir 10 manns á þessu Avastin lyfi. Vitiði afhverju ??? Af  því það er svo dýrt ... Kommon eru mannslíf ekki meira virði en það ?? Maður þarf að fá undanþágu og margir sem að fá synjun og mér finnst það mikil synd. Heyrði í dag enn aðra sögu um mann sem Avastinið var að gera þvílíka hluti fyrir þannig að þetta lyf virðist vera að gera góða hluti .. Afhverju þá ekki að nota það meira ???

Æji vá ... Sorry er pínu sorgmædd út í því hvernig heilbrigðiskerfið okkar virkar. Ætla að stoppa núna .. heheh.

Knús á ykkur öll.

Kv Ásta Lovísa

 

Flettingar í dag: 1069
Gestir í dag: 275
Flettingar í gær: 326
Gestir í gær: 126
Samtals flettingar: 110853
Samtals gestir: 21072
Tölur uppfærðar: 19.9.2024 22:13:35

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir

Afmælisdagur:

9. ágúst 1976

Um:

~ Söfnun ~ 0525-14-102510 Kt:09.08.76-5469

Tenglar