Færslur: 2007 Janúar

28.01.2007 16:13

Skrapp í smá afslöppun

Ég ákvað að skreppa í smá afslöppun eftir síðustu lyfjatörn og hef það rosalega gott ...vildi bara láta vita af mér og blogga meira þegar ég kem aftur..

Kv Ásta Lovísa

25.01.2007 12:15

Lyfja info

Hæhæ .

Er búin með lyfjameðferðina þessa vikuna og fröken dæla var tekin í gær. Lenti reyndar í því að fá rosa bakverk upp á spítala og ég tók þar sterka verkjatöflu og mér var skipað að leggjast upp í rúm. Náði að sofna og þegar ég vaknaði aftur þá var ég alveg eldhress. Var búin að vera mikið á flakkinu fyrr um daginn þannig að ég held að kroppurinn hafi bara vera orðinn pínu þreyttur.. Allavega þá er ekkert sem bendir til þess að sjúkdómurinn sé að versna.. Blóðprufan fyrir 2 vikum var rosa góð og ég fékk þá góðar fréttir... þannig að maður verður bara að trúa því að þetta hafi bara verið eitthvað tilfallandi .

Ég hitti Kára og Lóu í gær á fundi í Ljósinu. Það var ekkert smá gaman að fá að sjá andlitin á bakvið þá sem maður hefur verið að spjalla við á msn, mailum og ég hef mikið fylgst með bloggsíðunum þeirra. Ég tek að ofan fyrir þessum tveimur einstaklingum og VÁ hvað ég var stolt af þeim hvernig þau eru að vinna í sínum veikindum. Ég veit að þið lesið reglulega bloggið mitt ... Haldið áfram að vera svona sterk og ég hlakka til að sjá ykkur aftur fljótlega .

Heilsan mín er fín. Var á stærri stera skammti þessa vikuna og auka ógleðislyfjum þannig að ég náði ekki að verða neitt veik að ráði nema smá þarna á mánudagskvöldinu. Hafði það samt bara kósý heima þrátt fyrir smá slappleika það kvöldið .. þannig að ég er mjög sátt við þessa viku. Næst fer ég á síðasta Avastin skammtinn og svo fer ég í alsherjar rannsóknir. Fer svo líklegast aftur á Avastin kúr í x6 skipti og svo verður aftur athugað stöðuna.

Læt þetta duga af mér í bili !!

Kv Ásta Lovísa

23.01.2007 18:30

Lyfjameðferð .. Dagur tvö

Hæhæ snúlls .

Í dag var dagur tvö í þessari lyfja viku... Ég svaf illa í nótt út af sterunum og líka út af því ég gat ekki beðið eftir að hitta Höllu læknirinn minn til að fá að vita hvort krabbameinsvísarnir hefðu lækkað meira. Kemur ekki gellan inn á deildina og tilkynnir mér það að hún hefði óvart gleymt að merkja við CEA á blóðprufubeiðninni minni þannig að ég gat því ekki fengið að vita neinar tölur þessa vikuna ... fúlt ... heheheh en svona er þetta bara og þá verður kannski bara mun meiri lækkun þegar ég kem næst og líka er það síðasta skiptið sem ég fæ Avastinið fyrir næstu stóru rannsókn og myndatöku ...  ...  Verð því bara að biðja fyrir því að fá út góða blóðprufu og myndatöku ... *krossafingur*.

Ég var svo skræk í röddinni í gær af sterunum að það var ekkert smá fyndið og vaknaði þvílíkt hás í morgunn því ég ofreyndi röddina í gær... HA HA HA HA.... Allir bara hvað kom fyrir röddina þína?? ... Hehehe... og svo var ég eitthvað að reyna að syngja og fattaði það náttúrulega ekki að lágu tónarnir mínir voru háir því að röddin mín var þannig og þegar ég ætlaði að fara hærra þá bara gat ég það ekki því að ég hafði enga fleiri háa tóna eftir ... God þannig að ég sleppti því þá bara að syngja .

Ég er nokkuð brött í dag. Varð pínu veik í gær en vonandi verður þessi dagur betri. Kvöldið er eftir og er ég að fara að hitta hana Páli mína sponsorinn minn á kaffihúsi núna á eftir. Ætla að leyfa ykkur að geta á hvaða stað ??? .. Heheheh ... Vá hvað maður er vanafastur .

Á morgunn losna ég við fröken dælu viðhaldið mitt. Alltaf gott að losna við hana því það er ekkert voða spennó að hafa hana hangandi á maganum og líka þegar maður sefur ... En samt má maður ekki gleyma að þetta eru lyfin sem að jú halda lífi í manni þannig að maður verður víst að reyna að hugsa til fröken dælu með kærleika en ekki pirring... Á það nú samt til að gleyma því .

En allavega þá er ég á pínu hraðferð núna og ætla því að láta þetta duga núna í bili.

Knús á línuna........

Kv Ásta

 

22.01.2007 19:56

Mánudags blogg :)

Jæja þá er koktaildagurinn búinn . Bað um extra stera og ógleðis skammt en ég er samt pínu lasin núna. Er búin að vera óglatt og með velgju eftir daginn ... en hey það sem drepur mann ekki styrkir mann .

Eftir lyfjameðferðina fór ég á Vegamót að borða (kemur það ekki á óvart???) með Þórdísi Tinni minni og Önnu Þóru. Ég og Þórdís vorum frekar fyndnar þarna báðar hálf lasnar út af lyfjunum að bryðja ógleðis töflurnar okkar ... hehehehhe. Frekar fyndið ... en það er bara svo nauðsynlegt að komast aðeins út á meðal fólks í annað andrúmsloft og reynta að gleyma veikindunum um stund.

Átti rosalega gott spjall  fyrir nokkrum dögum við ungan mann sem hefur verið að berjast við krabbamein. Eftir sit ég með margar vangaveltur .... því þessi ungi maður var svo þroskaður miðað við aldur og fékk mig til að sjá krabbameinið og hvernig hægt væri að tækla það á nýjan hátt. Hann sagði við mig hehhe .. mér finnst þetta flottast: " Ekki öfunda ég krabbameinið að þurfa að fást við þig ". Ég hef alltaf hugsað þetta þannig að það væri ég en ekki krabbameinið sem að væri ekki í öfundsverðri stöðu. Einnig var hann að tala um mátt hugans til að lækna með lyfjunum. Hann sagði við mig ef þú hugsar um sítrónu hvað gerist ?? Ég segi jú ég finn súrt bragð í munninn. Þá fékk ég það svar ætti þá ekki líka að vera hægt að vinna með hugann á læknandi hátt ?? Eftir þetta var mér hugsað til allra kvennanna í heiminum sem að halda að þær séu óléttar, fá einkenni og alles og eru svo ekkert óléttar. Þarna spilar hugurinn lykilatriði ... Ætli það sé þá ekki hægt að nota hann í lækningaskyni ???? Ég er farin að hallast að því og ætla mér að prufa það. Held að máttur hugans sé miklu meiri en við mörg höldum. Kæri X ég veit að þú lest bloggið mitt og ég vil þakka þér fyrir þetta. Gerðu eitt fyrir mig ... ekki hætta að blogga ef sú ákvörðun var tekin út af leiðinda kommenti sem ég frétti að þú fékkst. Er ekki viss um hvort þú fékkst þau því ég sá þau ekki sjálf en frétti af því. Ég hef fengið þau nokkur og það er eins og viðkomandi hafi þrætt hetju linkinn minn og sent nokkrum annað eins.... en sem betur fer ekki í sama magni og mitt blogg hefur fengið. Svona komment eins og þessi sýna í raun hversu mikið manneskjan á erfitt ... fyrst hún getur látið svona frá sér til veikra einstaklinga sem eru að berjast fyrir sínu lífi. Ég læt svona fram hjá mér fara og eyði því út jafn óðum. Gerðu það líka hetja ... því þú ert ekkert nema hetja í mínum augum. En ef ákvörðunin er tekin vegna skýringana sem þú gefur þá virði ég það og mun ekki reyna að tala þig til neitt frekar .

SORRY munræpuna í dag. Er á háskammta sterakúr núna og með skræka rödd og með eindæmum ofvirk. Greyið Diddi minn ætlar að koma í kvöld og vera hjá mér. Mig grunar að sumir fari þreyttir heim aftur ... hehehhe... en hey hvað leggur maður ekki á sig fyrir þá sem manni þykir vænt um .

Knús og klemm

Kv Ásta

 

21.01.2007 15:09

sunnudagur

Þá er helgin við það að klárast. Er búin að vera með allt gengið mitt og Diddi og Lena voru hjá okkur líka. Sé alltaf hvað úthaldið mitt er lítið eftir þessar helgar sem að grísirnir mínir eru hjá mér og enginn skóli né leikskóli... Þó að kraftarnir mínir klárist á þessum helgum þá myndi ég alls ekki vilja skipta þessum tíma út. Get hvílt mig eftir á... . Enda mjög dýrmætur tími þó hann kosti mikla vinnu þegar maður er lasinn.

Ég dreif mig með Kristófer, Emblu og Lenu í bíó í gær að sjá myndina Night at the museum .. litla dýrið hún Írena fékk að vera á meðan hjá ömmu sinni að leika við Tinnu frænku sína ... ekki slæmt það enda ekki alveg mynd sem hún myndi fíla . Verð bara að segja það að ég skemmti mér þvílíkt vel á þessari mynd sjálf.... .

Embla og Kristófer fara á eftir til pabba síns í viku og Írena fer til pabba síns... þannig að ég verð ein í kotinu og ætti að geta sofnað snemma og endurhlaðið orkuna fyrir morgundaginn.

Á morgunn er lyfjameðferðin og aðal lyfjakoktaildagurinn. Alltaf mesta törnin á degi eitt. Ætla að draga hana Önnu mína með mér svo ég hafi einhvern félagsskap. Þessi dagur tekur alltaf svo langan tíma og því fínt að hafa félagsskapinn . Á morgunn fæ ég Avastinið í x5 sinn. Þá á ég bara eitt skipti eftir og þá verða teknar nýjar myndir....spennó !! Ég var svo slöpp á föstudaginn að ég treysti mér ekki að fara í blóðprufuna eins og ég átti að gera. Mæti því aðeins fyrr á morgunn til að fara í hana en þá fæ ég ekki að vita hvort það hafi orðið meiri lækkun á krabbameinsvísunum eða ekki fyrr enn fyrsta lagi á þriðjudag. Það verður bara að hafa það .

Knús og klemm

KV Ásta

 

18.01.2007 13:34

Blogg stífla :)

Ég veit að ég hef ekkert bloggað í nokkra daga... Var haldin blogg stíflu án gríns ..heheh... vissi ekki alveg hvað ég ætti að blogga um. Ég er ennþá á lífi og hef það fínt .

Krakkarnir eru búin að vera hjá mér og það hefur gengið ágætlega. Þau eru pínu að reyna á þolinmæðina mína þessa dagana ... enda kannski ekkert skrítið og ég veit að það er alls ekki auðvelt að lifa í svona aðstæðum eins og þau gera. Írena mín kemur líka til mín á morgunn og verður yfir helgina þannig að það verður nóg að gera hjá mér um helgina .

Heilsan mín hefur verið nokkuð góð síðustu daga,,, verið með pínu verki í skurðinum mínum og í raun get ég sjálfri mér um kennt þar. Var eitthvað að lyfta hlutum sem ég má ekki og gera of marga hluti ... þannig að ég get í raun ekki kvartað .

Fimmta Avastin lyfjameðferðin er svo á mánudag. Þá þarf ég bara að fara einu sinni enn og þá verða teknar ýtarlegar myndir af kviðarholinu. Er pínu spennt að fara í hana og líka kvíðin yfir að fá slæmar fréttir. Er eiginlega svona beggja bland. Samt betra að vita stöðu mála hvort sem þær eru slæmar eða góðar. Ef þær eru slæmar þá bara að bretta hærra upp ermarnar og tækla það sem koma skal og ef þær eru góðar þá getur maður lifað á því næstu dagana eða mánuðina .

Ég átti áhugavert símtal við konu í fyrradag. Þessi kona fékk lugnakrabba og var með fullt af meinvörpum í lifrinni. Í dag er þessi kona alveg hrein og án krabba. Ég á eftir að lifa á þessu samtali í langan tíma. VÁ hvað það var gott að heyra í íslenskri konu sem að hefur læknast af meinvörpum í lifrinni. Hún persónugerði krabbann og hann átti nafn. Það var svo margt sem hún gerði sem ég ætla að prufa. Þá er ég ekki að meina einhverjar inntökur á einhverju drasli... heldur studdist hún við hugleiðsluspólur, fór í heilun og nálastungur. Ég ætla mér að ná þessu takmarki ... nú veit ég ennþá betur að þetta er hægt !!!

Knús á ykkur

Kv Ásta

 

15.01.2007 17:50

Blogg bögg

Ég er búin að vera að fá leiðinda athugasemdir hér á blogginu mínu. Auðvitað hefur manneskjan ekki gert það undir nafni ... sem mér finnst frekar fyndið. Grunar reyndar að þetta sé einhver krakka gemlingur sem hefur ekkert betra við tímann sinn að gera en að vera að reyna að böggast í mér... En vittu til ég tek þetta ekkert persónulega þó svo þú sért að reyna að láta mig taka því þannig og ég mun eyða öllu bullinu þínu út jafn óðum og það kemur inn þannig að eyddu tímanum þínum í eitthvað mikilvægara.... Þetta er ekki að gera sig hjá þér!!!

Helgin hjá mér var fín. Ég brallaði margt og mikið. Skrapp meðal annars í bíó að sjá myndina Apocalypto sem er meistaraverk eftir Mel Gibson. Þessi mynd er þrusu góð og ég mæli með henni... Fékk ekki kvíðakast í bíó þetta skiptið ... heheh... þrátt fyrir að myndin hafi verið mjög átakanleg .... Kellan greinilega öll að koma til .

Núna er ég með öll 3 börnin. Eldri krakkarnir búin að vera viku hjá pabba sínum og núna er mín vika. Ákvað að taka Írenu lilluna mína líka til mín í nótt... Var farin að sakna hennar og hún mín .  

Mér langar að biðja ykkur að taka þátt í að kveikja á kerti og biðja fyrir henni Lóu á þriðjudagskvöldið kl 21. Lóa er ung stelpa sem er veik af krabbameini og fjölskyldan hennar er að biðja fólk um að sameinast í bæn. Bloggið hennar er : http://blomaros.bloggar.is/

12.01.2007 22:28

Howdy

Hæhæ .

Dagurinn í dag er búin að vera þræl fínn. Var að byrja í endurhæfingu á Borgarspítalanum í morgunn...... Er rosa spennt fyrir því. Ætlaði að byrja í ræktinni en það er víst ekki sniðugt á þessum tímapunkti. Ástæðan er sú að mér var sagt að það væri ekki gott að vera að brenna samhliða lyfjameðferðinni .. Þannig að ég ætla að byrja undir leiðsögn sjúkraþjálfara og þegar ég veit hvað má og hvað má ekki þá má endurskoða ræktina . Þetta er allavega góð byrjun og vonandi kemst ég aftur í ræktina niðri í Laugum ... Finnst svo gott að vera þar.

Ég var að enda við að skríða heim . Átti svo gott kvöld með henni Sirrý minni... Finn hvað það gerir manni gott að komast aðeins út og hitta annað fólk. Hef líka tekið eftir því að ef ég er dugleg að rækta samskipti mín út á við þá líður mér betur andlega og kvíðaköstunum fækkar. Þegar maður er slappur þá er svo auðvelt að falla í þá gryfju að loka sig inni. Það er líka gott að hvílast þannig að maður þarf að finna einhvern milliveg. Ég á það samt til að fara aðeins of geyst .

Hef voðalega lítið að segja núna. Ekkert þannig lagað merkilegt að frétta af mér. Er ennþá í skýjunum út af blóðprufunni og það verður gaman að fá að vita hvað kemur út úr henni næst . Vonandi halda tölurnar áfram að lækka .

 

11.01.2007 00:09

Góðar fréttir :)

Jæja þá hef ég góðar fréttir að færa  .

Ég kom á deildina í dag til að láta taka fröken dælu. Halla krabbameinslæknirinn minn kom inn í herbergið til mín og tilkynnti mér það að í fyrsta sinn síðan ég byrjaði í lyfjameðferðinni sést lækkun á krabbameinsvísunum  (CEA) í blóðinu mínu ... íhhaaaaaa. Þetta var reyndar ekki mikil lækkun en lækkun engu að síður. Þá er bara að halda þessu striki áfram og vona að þessi framför haldi áfram .

Ég var frekar slöpp á mánudaginn eftir langa koktaildaginn minn þannig að ég bað um meiri stera á þriðjudeginum og þeir slógu vel á ógleðina. Gat því farið út í gærkvöldi til að hitta 4 vinkonur mínar á Vegamótum ...off course. Hætt að koma á óvart hvaða staður verður fyrir valinu þegar ég fæ að ráða .... hehheeh... ég hreinlega elska þennan stað. Maturinn þarna er svoooooo góður og virkilega ódýr. Maður þarf ekki að selja úr sér annað nýrað og annan handlegginn til að fá að borða þarna ... hehehhee .

Var líka mjög hress í dag. Var á rúntinum í allan dag með henni Önnu minni. Gekk frá Tenerife ferðinni sem ég fékk í verðlaun fyrir að hafa verið valin íslendingur ársins af Ísafold tímaritinu. Ég reyndar ákvað að bæta við viku þannig að við verðum í 2 vikur en ekki eina eins og verðlaunin hljóðuðu upp á. Við förum út í mars ég, mamma og krakkarnir  ... úfffff get ekki beðið !!!!...Krakkarnir fara því með mér út í febrúar til Svíþjóðar og til Tenerife mars. Ekkert smá mikið miðað við að þau hafa aldrei farið erlendis eða stigið fæti í flugvél áður ... nema Írena Rut sem kom með mér til Svíþjóðar til Daða þegar hún var aðeins 6 mánaða og var ennþá á brjósti. Ekki sjéns að hún muni eftir því ævintýri .

Þessa dagana blasir lífið sannarlega við mér. Lyfjameðferðin gengur vel, ferðalög framundan og ég virkilega glöð í mínu hjarta (say no more )..... og því margt til að gleðjast yfir. Ætla bara að krossa fingur og vona að hlutirnir haldi áfram að ganga svona vel .

Knús á ykkur öll

Luv Ásta

 

 

08.01.2007 20:04

Lyfjameðferðin

Fór í lyfjameðferðina eld snemma í morgunn og var ekki búin fyrr en um 16 ... enda fyrsti lyfjadagurinn af þremur er alltaf aðal lyfjakoktail dagurinn. Þá fæ ég mörg lyf og Avastinið er eitt af þeim. Eftir lyfjameðferðina brunaði ég heim og lagðist upp í sófa og horfði á videó. Skrítið að hafa ekki börnin en samt finn ég það núna hvað það var gott að geta bara tjillað upp í sófa með tærnar upp í loftið og slakað á. Er pínu slöpp núna og með dúndrandi hausverk en hey ég gæti haft það verra .

Talaði við Höllu krabbameinslæknir í dag um hin ýmsu mál. Hún heldur að bakverkurinn stafi af bólgum í magaopi en ekki neinu alvarlegu. Eða þá að það séu bólgur í himnunni utan um lifrina. Held samt að magaopið sé sökudólgurinn því allt í einu er ég alltaf svöng sem er mjög óvanalegt fyrir mig eftir að ég greindist. Þegar magaopið er bólgið þá heldur líkaminn að hann sé alltaf svangur og það passar. Eftir að ég greindist þá hef ég verið með sama og enga matalist ... rétt kroppa í matinn og kílóin hafa hrunið þessa mánuði. Þannig að það er alveg nýtt fyrir mér að vera með mikla matarlyst eftir að ég veiktist.... Tek það fram eftir að ég veiktist .

Eitt af því sem ég gekk á Höllu með eru horfurnar mínar.... Ohhhh ég þoli ekki þegar ég tek upp á því að spyrja því ég fæ alltaf svör sem ég höndla ekki að heyra. Svei mér þá ef ég er ekki haldin sjálfspyntingarhvöt á hæðsta stigi. Ég fékk þau svör að það sé hægt að halda þessu niðri vonandi sem lengst en lækning sé mjög ólíkleg. Ég kýs samt að trúa því ekki ... mín leið til að halda geðheilsunni og ég vil trúa því að það sé alltaf von. Ég veit um dæmi þar sem maður var miklu verri haldinn en ég af meinvörpum í lifur og hann læknaðist. Það er ekki algengt EN ÞAÐ GERIST !!! Halla sagðist reyndar vita um dæmi þess sjálf hér á Íslandi en það væri mjög sjaldgjæft það er nóg fyrir mig að vita. Ég ætla að vera ein af þeim og Halla skal fá að standa agndofa yfir framförum mínum ... HANA NÚ!!!! Eitt sem ég nefndi líka við Höllu var að ég vil að hún athugi hvort það sé einhver minnsti möguleiki á að fá að fara á líffæraþegalista. Mér finnst asnalegt að krabbameinsveikir séu settir í annan flokk en aðrir og það sakar ekki að reyna að athuga málið. Í versta falli þá hafna þeir mér bara og þá veit ég að ég allavega reyndi. Ég vil skoða allt sem gæti lengt líf mitt og ég mun ekki hætta því. Einnig bað ég hana um að athuga með lyfið sem að Kínverjar eru að nota með góðum árángri enn sem komið er en málið er að önnur lönd hafa ekki viljað nota það því það er ekki komin nógu mikil reynsla á það með tilliti til aukaverkana og þess háttar vesen. Það sem þetta lyf hefur yfir önnur lyf er að þetta er fyrsta krabbameinslyfið sem til er sem að ræðst á DNA krabbameinsfrumunar og breytir því sjúklingnum í vil. Mig langar líka rosalega að fara til Bandaríkjana og fara á Mayo Clinic þar sem færustu krabbameinslæknar í heimi eru og fá annað álit. Talaði einmitt líka um það við Höllu og hún ætlar að kanna það fyrir mig.  Þórir hetja og frú bentu mér á þennan möguleika þannig að Þórir og frú ef þið eruð að lesa þetta þá er þetta í skoðun .

Ég finn ekki fyrir ofvirkni af sterunum núna. Það er kannski ágætt líka en mér finnst samt betra að vera ofvirk og líða vel heldur en að vera slöpp, þreytt og með hausverk eins og ég er núna. Finnst fyrri kosturinn betri en þetta er svo upp og ofan hjá mér og ég veit aldrei fyrirfram hvernig ég verð í hvert sinn.

Dæja skvísa mætti upp á deild í dag í smá heimsókn. Ekkert smá gaman að hitta hana aftur. Hún fékk líka ristilkrabba eins og ég en var svo heppin að hann var staðbundinn hjá henni og hún þurfti bara að fara í 6 mánaða fyrirbyggjandi lyfjameðferð og er núna útskrifiuð. Hún flokkast því sem cancer survivor sem er alveg frábært. Vonandi get ég sagt einn daginn ... Hæ ég heiti Ásta Lovísa og er cancer survivor .

Á morgunn er dagur 2 í lyfjameðferðinni. Wish me luck !!

Tjá tjá

Luv Ásta

 

07.01.2007 15:40

Hux* hux* hux*

"........ Ég er ekki gefin fyrir uppgjöf. Ég berst þar til ég fell. Þetta er styrkur sem mér er blóð borinn..... Það sem máli skiptir er að trúa á að meðan þú getur dregið andann eigirðu von.

Hún Pálí mín gaf mér bók sem heitir Sérstök gjöf, Kjarkur og Von. Þessi fallegu orð koma þaðan ásamt fullt af öðrum fallegum.

Helgin mín með krakkana gekk vel . Diddi var hjá okkur yfir helgina með Lenu sína þannig að það var sko glatt á hjalla og mikið leikið. Verð samt að viðurkenna að ég er pínu þreytt eftir allt game-ið... enda ekki skrítið... En samt þægilega þreytt .

Í gær varð ég að taka erfiða ákvörðun. Ég er búin að vera með eldri tvö hér heima hjá mér en lillan mín er mest hjá pabba sínum síðan að ég veiktist. Ég er ekki einu sinni að geta sinnt þeim eldri vikuna sem ég er í lyfjameðferðinni. Ég reyni, reyni og reyni ... en er alltaf slöpp, þreytt og pirruð. Ég vil ekki að veikindin mín þurfi að marka allt heimilislífið eins og það gerir. Ég vil heldur ekki að börnin mín minnist mín sem þreytta, pirraða mamman ef ég tapa minni baráttu. Þetta er sárt að viðurkenna að maður geti ekki einu sinni sinnt almennilega börnunum sínum lengur ....... Ég kaus ekki að verða svona veik og ég verð bara að reyna mitt besta og velja og hafna með alla aðila í huga. Þá komum við að því sem ég þurfti að taka ákvörðun um......... Eftir að hafa rætt við pabba þeirra eldri komumst við að þeirri niðurstöðu að kannski væri best fyrir krakkana að búa hjá honum vikuna sem ég er í lyfjameðferðinni og vikuna á móti hjá mér. Semsagt viku viku dæmi. Úúúúfff mér finnst ég ömurleg mamma núna án gríns!!!! En hvað annað get ég gert ???? ´

Á morgunn fer ég í lyfjameðferðina. Ég er svo mikill gullfiskur að ég gleymdi að fara í blóðprufuna á föstudaginn sem sker úr um það hvort ég fái grænt ljós á lyfjameðferðina þessa vikuna. Ég var meira að segja á bráðarmóttökunni og fattaði ekki einu sinni að biðja þá um að taka blóðprufuna þannig að þetta er í raun tvöföld gleymska ... heheheh.... Á eftir að gleyma sjálfri mér þarna uppfrá einn daginn. Ég verð þá bara að mæta exstra snemma í fyrramálið og biðja þær um að hraða blóðprufunni og vona að það sé í lagi. Ég finn svo rosalega hvað minnið mitt er orðið götótt eftir að ég veiktist og þarf að vera á öllum þessum sterku lyfjum. Ekki myndi ég leggja í að fara í skóla núna þó svo mér langi það rosalega. Hef alltaf fengið fínar einkunnir og grunar að þær myndu nú ekki vera upp á marga fiska ef ég reyndi eitthvað nám núna.

Á morgunn hitti ég Höllu krabbameinslækni. Er pínu forvitin að vita hvað hún segir um bakverkina. Mér finnst það pínu óþægilegt að vita ekki hvað sé að gerast í líkamanum ... en ég skil samt rökin líka. Með réttu á ég ekki að fara í myndartöku fyrr en eftir x6 skipti á Avastininu enn á morgunn er x4 skiptið.

Svíþjóðarferðin okkar krakkana frestast fram í febrúar. Bróðir minn fær ekki frí í vinnunni fyrr .... ekki viljum við fara út og brósi alltaf busy að vinna. Stelpan hans þá í vetrarfríi í skólanum og þá hefur Embla hana meira hjá sér enda jafn gamlar stöllur . Þessi tími hentar því betur ...... Þannig að Svíþjóð here we come brááááááðum !!!!

Ég er búin að setja fullt af linkum af ungu fólki sem er að berjast við krabbamein eins og ég. Linkarnir þeirra eru undir hetjurnar mínar. Endilega skoðið þessar hetjur og gefið þeim líka falleg komment eins og þið gefið mér svo oft. Án gríns þá er svooooo gott að fá þetta og það gefur manni svo mikið. Sérstaklega þá daga sem að svartsýnis púkinn bankar að dyrum.

 

 

 

05.01.2007 23:21

Bloggtími

Jæja þá loksins druslast ég til blogga .

Ég upplifði þvílíkt skrítna upplifun í nótt... Hundurinn var rosalega órólegur og ég var það líka sjálf. Ég var alltaf að vakna því mér fannst eins og einhver væri að eiga við mig í svefni..... úúúúú spúký!!! Ekkert smá furðulegt.... vonandi var einhver fallegur engill að kukla í meinvörpunum mínum .

Ég byrjaði reyndar að fá mikla bakverki í gær og í dag og eyddi kvöldinu á bráðarmóttökunni. Maður verður alltaf jafn hræddur þegar maður fær verki og byrjar að ýminda sér allt það versta. Krabbameinslæknirinn sem var á vaktinni vildi ekki taka myndir af kviðarholinu á mér. Hann sagði að ég hafi verið svo lengi lyfjalaus þegar ég fékk garnastífluna að það væri ekki ólíklegt að krabbinn í lifrinni hafi versnað eitthvað pínu og ég ætti að leyfa lyfjunum að fá sinn  tíma til að verka aftur. Hann vildi samt láta mynda hrygginn og sem betur fer fannst enginn krabbi þar. Varð pínu vonsvikin fyrst að ég skuli ekki hafa verið send í tölvusneiðmynd en þegar ég hugsa betur um þetta þá held ég að þetta sé alveg rétt ákvörðun hjá doksa. Halla krabbameinslæknirinn minn verður svo bara að meta það á mánudaginn hvort hún vilji láta taka mynd strax eða bíða með hana þar til ég er búin með 6 skiptin. Hverri myndatöku fylgir alltaf geislun og er því ekki gott að fara of oft. Ég er að fara í x4 Avastin skiptið á mánudaginn þannig að það þarf bara 2 skipti í viðbót og því ekki langur tími að bíða eftir fréttum á stöðu mála. Þannig að ég ætla bara að vona það besta að sjúkdómurinn sé ekki að gera eitthvað af sér .... Ætla allavega ekki að velta mér upp úr því núna .

Hitti Önnurnar mínar í dag. Ekkert smá gaman að setjast niður í góðum félagsskap og spjalla. Það er búið að vera eitthvað svo mikið um að vera hjá mér upp á síðkastið og ég var því farin að vanrækja vinkonurnar ... heheheh... Stelpur ég lofa að taka mig á . Hitti líka hana Þórdísi í gær .... fórum saman með krakkana út að borða. Við erum báðar að berjast fyrir lífi okkar þessa dagana og því gott að hittast og pústa . Krakkarnir okkar hafa líka gott af því að umgangast hvort annað ... því jú þau eru nú líka að ganga í gegnum það sama að eiga veikar mömmur.

Annars er bílastæðavesenið á Landsanum að pirra mig og Þórdísi þessa dagana. Ætlum að bretta saman upp ermarnar og reyna að berjast fyrir því að við sem erum krabbameinsveik og erum í lyfjameðferð fáum miða í gluggana til að losna við þetta bílastæðabull.  Ég bara á ekki til orð yfir þessu án gríns.... Þegar maður er í lyfjameðferð þá er maður pínu slappur þegar maður kemur út. Maður er samt alveg heill í kollinum ... er frekar svona eins og maður sé ný skriðinn upp úr ælupest. Ég persónulega vil ekki vera upp á aðra komin og vil keyra sjálf en maður treystir sér ekki að leggja langt í burtu og maður leggur því í gjaldskyldu stæðinn sem eru næst spítalanum. Maður veit aldrei hversu lengi maður er hverju sinni því að lyfin eru blönduð við komu en ekki fyrirfram... og það fer eftir því hversu margir eru á deildinni hverju sinni hvað apótekið er lengi að blanda lyfin fyrir alla. Ekki megum við hlaupa út með lyfjadælurnar í eftirdragi til að borga í stæðinn þannig að margir eru að lenda í því að safna sektum. Þetta er náttúrulega bara fáránlegt !!! Ekki gaman fyrir ráðamenn bílastæðana að fá tvö brjáluð naut upp á móti sér ... íhhaaaaaa .

Núna er komin helgi og ég með grísina mína og ætla ég að eiga yyyyyndsilegan tíma með þeim .

 

 

03.01.2007 18:50

Litla viðkvæma blómarósin :)

Í gærkvöldi skellti ég mér út að hitta hana Grétu  mína og kærasta hennar. Þau búa í Köben og voru að fara aftur heim í dag þannig að mig langaði að kveðja. Ég dró hann Didda minn með og hittumst við fyrst á Café Viktor og síðan lá leið okkar að sjá James Bond í bíó. Ég sat alveg heilluð yfir myndinni en svo allt í einu fékk ég þennan þvílíka risa kvíðahnút í magann og tárin fóru að streyma..... á James Bond af öllum myndum ...heheheheh.... Ég veit ekki alveg hvort það hafi stafað af því að Gréta væri að fara eða hvort að það hafi verið vegna dauða sem átti sér stað í myndinni. Kannski sambland af hvoru. Sú hugsun bara flaug í hausinn á mér þegar ég sá Bond sitja þarna niðurbrotinn með dömuna sína látna í fanginu að kannski myndi Diddi sitja með mig svona í fanginu niðurbrotinn af sorg innan einhvern tíma. Þessi staðreynd stakk mig eins og trilljón hnífar og ég bara gat ekki haldið aftur á tárunum. Samt tókst mér að fela þetta vel og Diddi var sá eini sem var var við að mér liði ekki vel. Brotnaði svo bara niður þegar við komum saman út í bíl og Diddi minn náði að róa mig niður. Hvað er að manni ???? James Bond af öllum myndum ... heheheh.... ekki eins og ég hafi verið á einhverri ástarvellu. ...en hey myndin er samt geggjuð mæli með henni!!!

Í gær sótti einnig stíft á mig hugsun... sem fékk mig til að líða illa. Eins og ég hef sagt áður þá lést mamma þegar ég var lítil stelpa. Mér fannst alltaf eitthvað vanta þó svo ég hefði aðra konu sem ég kalla mömmu sem hefur reynst mér 100%... þá fannst mér samt alltaf vanta eitthvað pínu þegar ég var á unglingsárunum. Þessi brenglaða hugsun mín á þessum tíma leiddi af sér að ég ákvað að skapa aðstæðurnar sjálf sem ég þráði. 18 ára byrjaði ég með gaur sem var 9 árum eldri en ég og varð ólétt af ásetningi. Þarna var ég búin að mynda móðir/barn tengsl sem ég þráði svo á þessum tíma. Í gær rann svo upp fyrir mér sú kalda staðreynd að aðstæður mínar í dag eru sláandi ef ekki óhugnalega líkar aðstæðunum sem ég ólst upp við. Bróðir minn kom elstur (Eins og Kristófer Daði). Þremur árum seinna kom ég (eins og Embla Eir) og svo loks kom Höddin mín 5 árum á eftir mér (Eins og Írena Rut). Hödd ólst upp hjá mömmu sinni sem ég kalla reyndar mömmu líka og ég og Daði ólumst upp saman. Það sem mér finnst svo skelfilegt við þetta er að ég er á sama aldri og mamma mín var þegar hún var veik og á endanum lést hún. Ef ég kem til með að fara þá koma börnin mín til með að alast upp eins. Írena sér og hin tvö sér. Með leikriti mínu í upphafi er ég búin að skapa þeim sama veruleika og ég þoldi ekki. Ekkert smá skrítið þetta líf og það má segja að það sé svo sannarlega óútreiknanlegt. Ég kona í minni aðstöðu kemst ekki hjá því að velta fyrir mér hvernig börnin mín koma til með að plumma sig í lífinu án mín. Í dag eru freistingarnar mun fleiri heldur en var áður fyrr og ég verð bara að segja að þetta nagar mig pínu. Ég er ekki að segja að ég sé farin að gefast upp ... alls ekki.... þetta eru bara hugsanir sem ásóttu minn skrítna haus í gær.

 

02.01.2007 15:07

Fyrsta bloggið á nýju ári

Þá er komið nýtt ár .

Get ekki sagt að ég sakni ársins 2006. Hugsa samt til þess með svona frekar blendnum tilfinningum. Það að greinast með krabbamein er náttúrulega rosalegt sjokk og maður óskar engum það. Samt er svo margt sem ég er búin að læra í kjölfarið sem ég hefði ekki viljað fara á mis við. Minn draumur er samt að verða hrein aftur. Hrein og með fullar hendur af reynslu og visku sem að krabbinn gaf mér ...sem ég fæ svo vonandi að miðla áfram. Skrítið að segja að krabbinn hafi gefið manni eitthvað jákvætt en þannig er það samt.

Er búin að eiga yndisleg jól og áramót með minni fjölskyldu. Var reyndar lítið með krakkana milli jóla og nýars enda í lyfjameðferðinni. Maður fær víst ekki jólafrí frá henni . Myndi ekki einu sinni vilja sleppa ef það hefði verið í boði.

Avastinið er aftur komið á dagskrá. Það fór ágætlega í mig síðast... Pínu flökurt við og við og með furðulega tilfinningu í hausnum en ekkert alvarlegt.  Ég hef fengið Avastinið x3 sinnum með skiptunum sem ég fékk áður en ég fékk garnastífluna. Ég spurði Höllu hvort að við byrjum að telja aftur frá 0 eða ekki. Þarf að fara í 6 skipti áður en myndir eru teknar að nýju. Halla sagði að við myndum ekki byrja aftur á núlli þannig að ég held að lifrin verði skoðuð eftir 3 skipti. Vonandi fæ ég jákvæðar fréttir.... ég trúi því. Næsta lyfjameðferð hefst svo á næsta mánudag.

Það er eitt sem ég hef verið að velta fyrir mér. Mér skilst að krabbameinsveikir fái ekki að fara á lista yfir líffæraþega. Ég til dæmis má ekki fara á lista yfir fólk sem þarf að fá nýja lifur. Þegar ég hef spurt afhverju þá skilst mér að það sé út af því að það sé möguleiki á að krabbinn taki sig upp þar.... að það sé sóun á líffæri. Það er líka möguleiki á að krabbameinsfrítt fólk sem þarf ígræðslu út af einhverju öðru hafni líffærinu... Þekki sjálf eitt dæmi þess. Það er líka möguleiki á að verða undir bíl. Mér finnst pínu lítið eins og verið sé að mismuna fólki.... Fólk á að hafa sama rétt. Það er pínu sárt að vera með krabba í lifrini og vita til þess að það sé ekki sjéns að fá nýja... þó svo að það gæti gefið manni lífið aftur.

Áramótarheit .... Fóru þið með svoleiðis ??? Ég ætla að reyna að taka mataræðið mitt í gegn aftur. Reyna að hafa það hollara og byrja að hreyfa mig. Mig langar að fara að æfa aftur eins og ég gerði áður en ég veiktist. Hef hingað til ekki treyst mér í það eða haldið að ég gæti það ekki .....vitiði ég ætla mér allavega að reyna það . Vonandi fæ ég líka heilsuna mína aftur. Ætla rétt að vona að árið 2007 verði mér eitthvað hliðhollara en það síðasta. Ætla líka að vona að ég fái að upplifa fullt fullt af árum þar sem ég get hugsað til ársins 2006 sem reynsluríkt ár sem kenndi mér svo margt þrátt fyrir allar hraðahindranirnar. 

 

 

  • 1
Flettingar í dag: 130
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 326
Gestir í gær: 126
Samtals flettingar: 109914
Samtals gestir: 20853
Tölur uppfærðar: 19.9.2024 03:00:04

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir

Afmælisdagur:

9. ágúst 1976

Um:

~ Söfnun ~ 0525-14-102510 Kt:09.08.76-5469

Tenglar