Færslur: 2006 Október

31.10.2006 20:26

Grumphy days

Dagurinn í dag var einn af þessum grumphy dögum mínum  ... þoli ekki þegar þeir koma .. hehehe... en hey ég hlýt að mega eiga þessa daga líka við og við eins og aðrir. Ég hef samt verið að berja mig niður þegar þeir koma ... því mér finnst það vera viss uppgjöf að leyfa neikvæðum hugsunum að ná stjórninni. Ég hræðist það að ef ég leyfi þeim að ná valdi yfir mér að þá gefist ég upp í þessari baráttu. En hvað er ég að hugsa svona ???? Auðvitað á ég alveg að geta syrgt stöðu mína í lífinu án þess að þurfa að berja mig niður fyrir það.... Æji ég veit ekki.... ég hræðist mest af öllu þegar uppgjafartónninn er kominn í mig og út frá því á ég það til að spila mig of harða og leyfi mér ekki að syrgja stöðuna eins og hún er. Afhverju get ég ekki bara leyft mér að gráta eins og lítið barn??? Sumir aðstandendur mínir hafa áhyggjur af mér því þeim finnst ég vera of kúl á því. Kannski er ég eitthvað skrítin, kannski á ég eftir að brotna saman einn daginn en er það ekki viss uppgjöf ???

Guð ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki mömmu og vissa aðra aðila í mínu lífi. Mamma er alveg ótrúlegur einstaklingur. Vinnur hörðum höndum og kemur svo til mín til að hjálpa mér með heimili og börn. Það sem mér finnst dásamlegast við þetta allt er að í raun þá er hún ekki alvöru mamma mín en kemur fram við mig sem sína eigin. Eins og þið mörg vitið þá lést mamma mín og systir úr arfgengri heilablæðingu. Þegar ég var aðeins 3 ára gömul láu leiðir pabba og hennar saman og læsti ég mig utan um lærin á henni og spurði hana hvort hún vildi vera mamma mín ... hehehe...... og auðvitað gat hún ekki staðist þessi hvolpaaugu . Þrátt fyrir að ma&pa hættu saman þegar ég var á unglingsaldri þá hefur hún alltaf verið stoð og stytta í mínu lífi og barna minna. Talandi um að vera HÖRKUKVENDI .... hehehe .... þá er ég ótrúlega heppin að hafa kynnst henni .... LUV U MAMMA  ....

Ég sé það að á Barnalandi er söfnunarreikningurinn sem pabbi minn kom á laggirnar auglýstur... og vá ég er eiginlega orðlaus yfir undirtektunum *sniff*sniff*. Sunshine mín ég veit að þú lest alltaf bloggið mitt takk kærlega fyrir þessa fallegu hugsun og stuðning í minn garð... KISS OG KNÚS ..... og þið barnalandskonur takk kærlega fyrir mig !

Það er óhætt að segja að ég eigi marga góða að .

Kiss og knús

Kv Ásta

 

 

30.10.2006 17:43

Smá Update :)

Helgin var aaaaalllt of fljót að líða :) Ég fór í matinn þarna á föstudagskvöldinu og kíkti í heimsókn til Didda minn á laugardagskvöldinu .. en var reyndar komin snemma heim bæði kvöldin. Kúrði ein í kotinu alla helgina því það var pabbahelgi hjá grísunum mínum ... Það var í rauninni fínt og mér fannst alveg frábært að mér hafi tekist að vera ein með sjálfri mér án þess að fá kvíðakast..... því ef ég fæ kvíðaköst þá koma þau oftast þegar ég er ein með sjálfri mér því þá fer hausinn á mér af stað.

Ég er búin að vera nokkuð brött eftir síðustu meðferð þannig lagað ..... er samt rosa pirruð í skapinu og lítil í mér þessa dagana . Maður getur ekki alltaf verið brosandi þó svo ég virkilega reyni það. Það er sagt að ég eigi ekki að missa hárið en það hrynur og hrynur og ég er að hafa áhyggjur af því og svo hafa bólurnar verið að hrella mig sem er líka enn ein aukaverkunin.... Æji mér finnst það bara virkilega erfitt að hugsa til þess að fá skallabletti eða missa hárið. Ég veit alveg að hárið og bólurnar eru smáræði miðað við það sem þessi lyf geta gert fyrir mig .... en samt þá er ég bara mensk og kemst ekki hjá því að svekkja mig yfir þessum hlutum. Þegar mér líður svona þá reyni ég að fara í Polýönnu leikinn og hann virkar oftast fyrir mig . Það er alltaf til fólk sem hefur það verra en maður sjálfur ... maður verður bara að minna sig á það reglulega og reyna að vera þakklátur fyrir það sem maður hefur þrátt fyrir að maður finnist lífið stundum ósanngjarnt..

 

27.10.2006 17:34

Rok, rok, rok og meira rok

Úfff ekki var veðrið skemmtilegt í morgunn þegar ég vaknaði .... Dósirnar mínar á svölunum ákváðu að stíga dans mér til mikillar gleði eða þannig .

Var pínu löt í morgunn... ætlaði aldrei að nenna að vakna og ég bara leyfði mér það því ég átti ekki að mæta á spítalann fyrr en kl 13. Ég drattaðist á fætur um kl 11 og kom mér og Emblunni minni í föt því það eru víst vetrarfrí í gangi í skólanum hjá krökkunum þessa dagana og ég varð því að setja Emblu í pössun til Dagmar Dóru. Eftir það skellti ég mér á spítalann og var þar í lyfjameðferð til kl 15:30 og núna er ég með dæluna mína frægu á maganum til morgunns þar til hún verður tekin og þá er ég laus í 1 og 1/2 viku þar til næsta törn byrjar. Ég er ennþá nokkuð brött og ekki ennþá farin að finna mikið fyrir aukaverkunum og vonandi slepp ég bara vel í þetta sinn. Finnst það samt hæpið enda komin á svo mörg lyf... og jú þau öll hafa sínar aukaverkanir og því meiri líkur á að maður verði eitthvað slappur.  Sterarnir eru að gefa mér orkuna núna og ég er meira að segja rjóð í kinnum af þeim ... hehehhe.... frekar fyndin svona rjóð og sælleg en þegar steratökunni er hætt sem verður á morgunn þá kemur skellurinn vanalega og maður verður slappur og fölur og sefur og sefur.

Á eftir kemur Daði minn aðeins í bæinn. Alltaf gaman að sjá brósa sinn enda svo þvílíkt skemmtilegur kauði. Ég, pabbi, mamma, Hödd systir og co, Daði, Diddi og Lena ætlum að hittast og borða saman. Það verður án efa skemmtilegt eins og vanalega þegar við öll komum saman. Krakkarnir mínir verða reyndar ekki með enda pabbahelgi þessa helgina sem er jú ágætt því helgin fer örugglega að mestu leyti í það að hvílast ef ég þekki mig rétt og þegar ég er í miðri lyfjagjöf. Annars er helgin óráðin að mestu leyti ... því mér finnst rosalega erfitt að plana hluti fram í tímann því ég veit aldrei hvernig ég verð hverju sinni. En samt er alltaf verið að segja við mig að ég eigi að plana hluti sem mig langar til að gera og þá frekar að fresta þeim ef ég treysti mér ekki til. Ég held að það sé rétt en ég á bara svo erfitt með að beila á fólk. Mér finnst það svo leiðinlegt en kannski er það rétt að maður eigi samt að plana eitthvað til að hafa fyrir stafni og maður geti hlakkað til fyrir. Kannski ég þurfi að prufa að tileinka mér þessa nýju tækni set það allavega á to do listann minn

Annars er í raun ekkert voða mikið meira að frétta af mér. Allt heldur sinn vanagang og líf mitt snýst eiginlega bara um börnin mín, fjölskylduna og mín veikindi. Ég held mínu striki áfram og berst með kjafti og klóm og ég vil ekki trúa því að þetta sé ólæknandi þó að læknavísindin segi það. Við vitum öll að kraftaverkin gerast á hverjum degi og afhverju ekki alveg eins ég ?????´

Ég veit að það eru mjög margir sem eru að fylgjast með blogginu mínu sem mér finnst alveg frábært. Ég vil endilega ef það er einhver sem er ný greindur með krabbamein, með krabbamein eða á maka sem er með krabbamein.... eða bara langar að spjalla við einhvern sem er í sömu sporum þá má hinn sami senda mér email og hafa samband við mig. Emailið mitt er hægra meginn til hliðar eða : astalovisav@hotmail.com  .   Ég veit stundum ekki hvar ég væri ef að pabbi hefði ekki komið mér í samband við hana Hildi snúllu sem er líka að berjast við erfiðan krabba. Hún er sú sem skilur mig best og sparkar mér áfram þegar ég er alveg við það að gefast upp og það er bara svo mikilvægt að geta talað við einhvern sem að er að ganga í gegnum þetta sama og getur kýlt mann áfram. Einnig hef ég verið í sambandi við hana Dæju sem er líka að berjast við krabbamein og við erum allar á svipuðum aldri og það er bara svo gott að geta fengið að heyra þeirra reynslu og upplifun og miðla minni reynslu tilbaka. Þannig að ég vil vera til staðar og hjálpa ef einhver vill nota mig þá er það alveg velkomið án gríns .

Knús og klemm

Kv Ásta

26.10.2006 17:04

Lyfjasúpa dagsins

Þá er fyrsta lyfjasúpu deginum mínum lokið... íhhaaaaa  Gekk bara vel fyrir utan ég varð smá skrítin í augunum og höfðinu af einni sprautunni sem ég fékk í handlegginn en það lagaðist fljótt sem betur fer.

Ég mætti klukkan 08:30 í morgunn og í mig var dælt þvílíkri lyfjasúpu ....heheheh... ég var  ekki komin heim fyrr en um kl 15. Ég var semsagt að fá tvö ný lyf ofan á hin lyfin sem ég var með áður (fyrir utan eitt) og ég vona svo innilega að þessi koktaill komi til með að  hjálpa mér. Það er kominn tími á að fá einhverjar góðar fréttir til tilbreytingar. Svei mér þá ef ég er ekki farin að mynda þvílíkt þol gagnvart mótlæti...... en samt þá eru takmörk hvað maður þolir endalaust. Ég veit að ég er þrjóskari en *píb*og ég mun nýta þessa þrjósku og nota hana mér til góðs í þessari baráttu. Ég ætla mér að vera eitt kraftaverkið sem að læknavísindin gapa yfir.

Það er eitt sem pirrar mig þvílíkt þessa dagana. Það er bílastæða vesenið á LSP. Núna er búið að taka upp stöðumæladæmi á bílastæðunum sem eru næst spítalanum.... ok ég skil það vel og hef þannig lagað ekkert út á það að setja .. ENN málið er að núna vill enginn leggja þar lengur og leggja á stæðunum fjarri spítalanum. Þegar maður er í lyfjameðferð þá eru lyfin blönduð í apótekinu þegar maður kemur... eru semsagt ekki tilbúin. Ef það er mikið að gera á deildinni og margir í lyfjameðferð þá getur orðið ansi löng bið eftir lyfjunum og ég tala nú ekki um þegar maður þarf mörg eins og ég. Ég hef lengst þurft að bíða í 4 tíma eftir þeim án gríns. Þegar maður er í lyfjameðferð verður maður máttlaus og pínu slappur. Ég get samt oftast keyrt sjálf enda vil ég ekki vera upp á aðra endalaust komin..... Ég lendi því miður oft í því að þurfa að leggja langt í burtu og jafnvel í hverfunum í kring og staulast svo drullu slöpp tilbaka með lyfjadæluna sem ég þarf að taka með heim á maganum því annars enda ég alltaf á því að fá stöðumælasekt . Guð hvernig verður þetta þegar snjórinn og almennilegt rok fer að gera vart við sig?????.. Guð ég vil ekki einu sinni hugsa til þess. Ég veit aldrei hversu lengi ég þarf að vera þarna inni hverju sinni og við getum ekki hlaupa út í miðri lyfjameðferð til að setja pening í mælana. Er ekki nóg að þurfa að borga fyrir hverja komu á spítalann sem er nógu andskoti dýrt án þess að þurfa líka að punga út þvílíkri summu í þessa kassa eða að borga himinháar sektir ??? Nota bene ég er það oft  á spítalanum að ég er að spá að setja LSP inn sem annað lögheimili mitt  ...... SORRY en mér finnst þetta fáránlegt !!!!!! Mér finnst að við sem erum krabbameinsveik og þurfum alltaf að vera í lyfjameðferð eða foreldrar krabbameinsveikra barna eigi að fá kort í gluggana á bílunum sínum og að við fáum líka að leggja í bílastæðin næst sjúkrahúsinu án þess að þurfa að hafa áhyggjur af því að fá endalausar sektir. Þetta er bara FÁRÁNLEGT!!!

 

25.10.2006 17:11

Enn ein neitunin

Ég fékk enn eina neitunina í dag   Læknirinn vill ekki nota frysti/hitameðferðina núna eða treystir sér ekki í hana. Ég var reyndar búin að búa mig undir þetta þannig að sjokkið var ekki eins mikið og ég upplifði í gær. Þurfti meira að segja ekki kvíðastillandi fyrir þennan fund .... ein ógjeðslega kúl á því .... .

Ég var búin að binda von mína á að hægt væri að skera eða frysta þennan fjanda. Núna er öll sú von úti í bili þannig að ég verð að færa vonina á eitthvað annað. Ég bara verð að trúa því núna að nýju lyfin komi til með að hjálpa mér. Ef ég svara vel lyfjunum og eitthvað af meinvörpunum tíu fara..... eða að meinvörpin minnka þá er aldrei að vita nema að hægt sé að endurskoða ástandið og þá sé hægt að nota hita/frysti meðferðina eða skurðaðgerð. Þannig að ég verð bara að halda í þá von ... því jú ef ég hef hana ekki þá get ég allt eins látið jarða mig strax.

Það er endalaust verið að spyrja mig hvernig ég hafi það. Fólk er að hafa áhyggjur af því að ég sé búin að gefast upp út af mótlætinu síðustu daga. Í alvöru þá hef ég það ágætt og ég er ekki búin að gefast upp...... Langt frá því meira að segja. Þannig að don´t worry .

Kiss kiss og knús

Kv Ásta

24.10.2006 17:41

Góðar og slæmar fréttir

Ég mætti í dag til doksa. Viðtalið fór ekki alveg eins og ég hafði vonað og beðið fyrir. Það kom í ljós í þessari myndatöku að meinvörpin í lifrinni eru ekki 5 heldur 10... TAKK FYRIR !!!  Með því fór alveg sú von að hægt sé að skera. Þau eru öll reyndar lítil en þau eru samt 10 stk. Halla læknir hafði samband við annan lækni sem er ekki búin að svara með það hvort hægt sé að nota frysti eða hita aðferðina. Fæ að vita það á morgunn .... það er reyndar ólíklegt að ég fái það í gegn eins og staðan er í dag ..... en hey það kemur í ljós á morgunn eða hinn. Ef þetta klikkar þá hefst lyfjameðferðin aftur á fimmtudaginn á fullum krafti og með nýjum lyfjum. Sem betur fer þá eiga þeir heilt vopnabúr af lyfjum sem að hægt er að nota fyrir mig.

Það var samt einn jákvæður punktur í þessu öllu saman. Læknirinn minn sótti um undanþágu lyf handa mér sem er víst erfitt að fá og ég fékk það samþykkt. Ég fæ semsagt að prufa að nota það og vonandi lætur það eitthvað af þessum meinvörpum hverfa eða minnka og þá er kannski hægt að endurskoða skurðaðgerð eða hita/frystimeðferð.

Þrótt fyrir mótlætið í dag þá er ég ekki ennþá farin úr brynjunni og er ennþá í árásarhug. Þessi djöfulsins meinvörp skulu fá að minnka eða hverfa og ég sætti mig ekki við neitt annað !!!! Ég ætla mér ekki að deyja á næstu mánuðum það er alveg á hreinu. Ég ætla mér að koma börnunum mínum á legg og mér er drullu sama þótt ég þurfi að vera veik allan tímann á meðan. Ég skal koma þeim sjálf á legg.  ÉG SKAL ÉG SKAL !!!  Vonandi bara að ég verði þrjóskari en þessi meinvörp.

Ég trúi því að maður komist langt á viljanum einum saman. Ég trúi því að ég komist langt á bæninni. Ég trúi því að ég fái lengri tíma og ég sætti mig bara ekki við neitt minna. Ég er einstæð móðir með þrjú lítil börn sem lifa fyrir mömmu sína og ég lifi fyrir þau og ég skal standa undir því no matter what !!!

Ætla að láta eina bæn fylgja hérna með sem ein kona á BL sendi mér :

Drottinn minn og guð minn,
ég ákalla þig í neyð minni
og treysti þér frelsa mig svo ég
geti vegsamað þig alla mína dag

 

24.10.2006 14:46

Stress dauðans í gangi !!

Ég fékk símtal áðan frá krabbó doksanum mínum og ég var boðuð í viðtal á eftir  Ég er semsagt að fá að vita hvort eitthvað sé hægt að gera í mínum málum eða ekki.  Svei mér þá ef ég er ekki að upplifa eitt mesta stress ever !!! Ég er búin að biðja fyrir kraftaverki.... ég meira að segja fór á hnéin og bað í fyrsta sinn á þann háttinn síðan ég var barn.

Þetta er hræðileg tilfinning að upplifa....... það á enginn að þurfa að upplifa þá tilfinningu að þurfa að hafa dauðann hangandi á eftir sér. Stundum finnst mér ég ekki geta andað við tilhugsunina.... tilhugsunin við það að geta ekki komið börnunum mínum á legg og sjá barnabörnin mín fæðast, fá að upplifa það hvernig það er að gifta sig, upplifa það hvernig það er að vera með uppkomin börn og geta ferðast um heiminn án allra skuldbindinga með makanum mínum, hvernig það er að eldast....... Æji það er svoooo margt sem mig langar til að gera og fá að upplifa. Ég er ekki tilbúin til að missa af þessu öllu ........ Úffffffffff ég þrái ekkert heitar en að geta gert framtíðarplön ... núna get ég það ekki, allavega ekki eins og staðan er í dag. Get ekki einu sinni svarað því hvort ég geti haldið upp á afmælið mitt í Desember með tveimur vinkonum mínum. Ég veit ekkert hvernig ég verð þá eða hvaða staða verður þá....... ÞOLI EKKI að vera svona í lausu lofti og stundum finnst mér ég vera að kafna undan þessu öllu.

Úfff maginn á mér snýst og ég er með magapínu dauðans án gríns og ég er ekki einu sinni með ristil til að finna til í ... hehheheh..... held að ég sé með einhverja ristil draugaverki í maganum núna því ég var vön að fá svaka magapínur þegar ég varð stressuð og með ristil. Skritið að útskýra

Elsku bestu lesendur eruð þið til í að biðja fyrir mér núna án gríns ???? Biðja fyrir því að eitthvað sé hægt að gera fyrir mig. Ég trúi því að bænin geti hjálpað og ef sem flestir geri það þá verður kannski meiri von . Ég mun setja hvað fram fór á fundinum um leið og ég treysti mér til. Vonandi verð ég í skýjunum og geri það um leið ..... það verður bara að koma í ljós. Reyni allavega að gera það í dag eða í kvöld.

Kiss og knús

Kv Ásta

23.10.2006 19:25

INFO Rannsóknin & helgin.

Rannsóknin gekk ágætlega. Þetta er mjótt rör sem maður fer inn í og maður er ólaður niður. Ekki alveg fyrir þá sem eru með innilokunarkennd en þetta hafðist á endanum..... læt ekki einhverja véladruslu hræða mig . Það eru svo mikil læti í tækinu þegar hún er að mynda að ég þurfti að hafa headfone og Hödd systir var látin hafa eyrnatappa ...heheheh.... við systurnar vorum eins og tvær úr Tungunum ....... Þetta tók alveg slatta langan tíma enda átti ég að vera kyrr en var alltaf hóstandi ..... náði mér í eitthvað skítakvef og röddin mín hefur verið að koma og fara .....Ég var svo alltaf að dotta í tækinu tók nefnilega eina róandi pillu áður en ég mætti þannig að kellinginn var alltaf að kalla að ég yrði að anda dýpra.... en hey alltaf tókst mér að dotta aftur þannig að konu greyið lenti að endurtaka sig ansi oft . Maður verður nú að láta hafa aðeins fyrir sér. Ég er bara endalaust þreytt og gæti sofnað hvar sem er þessa dagana .

Núna er svo bara að bíða og sjá hvort  að hægt sé að skera eitthvað í lifrina eða frysta. Fæ vonandi að vita það á morgunn eða hinn..... og ef svo fer að það sé hægt þá held ég að það verði gert mjög fljótlega því það er ekki hægt að láta mig bíða lengi án þess að meiga fara í lyfjameðferðina. Það er víst ekki hægt að gera bæði í einu.

Helgin gekk ágætlega fyrir sig. Fékk Írenu mína líka þannig að mamma varð að koma og vera með mér með þau. Lenti reyndar í því á laugardagsmorgunn að það leið yfir mig og ég skallaði hausnum í vegginn. Kristófer minn sá að ég var eitthvað skrítin og kallaði á ömmu sína að það væri eitthvað að og mamma kom þá hlaupandi og greip mig áður en ég lenti í gólfinu sem betur fer. Þetta var samt pínu skondið því ég upplifði þetta pínu eins og ég væri að horfa á slow movie ... hehehhe.

Í gær skelltum við okkur á ljósmyndastofu með mömmu og Hödd og það var tekið hellingur af myndum af okkur öllum bæði á ljósmyndastofunni og niðri í fjöru. Þessar myndir koma til með að vera dýrmætar fyrir börnin mín og fjölskylduna ef allt fer á versta veg en ... hey ég ætla mér samt að gera allt í mínu valdi til að koma í veg fyrir þann endir en maður kemst samt ekki hjá því að velta því fyrir sér.

 

20.10.2006 19:06

Símtal

Ég fékk símtal í dag frá krabbameinslækninum mínum. Það var fundur í morgunn hjá krabbameinslæknunum, skurðlæknum og fleiru fagfólki. Ástand mitt var tekið fyrir á þessum fundi og allir að leggja sitt af mörkum til að finna einhverjar leiðir til að bæta örlítið ástand mitt. Ákveðið var að ég eigi að sleppa lyfjameðferðinni á mánudaginn og fari frekar í ítarlega myndartöku af lifrinni sem að gefur skurðlæknunum betri sýn á hvernig meinvörpin liggja, stærð og staðsetningar. Þeir eru eitthvað að vonast eftir því að hægt sé að skera eða frysta meinvörpin eða gera eitthvað til að að hægja á þessari hröðu þróun á þeim. Mér brá fyrst þegar ég heyrði þessar fréttir og lenti í kvíðakasti dauðans og það á meðal fólks í Ljósinu sem er reyndar staður fyrir krabbameinsveikt fólk til að koma saman og hittast  .... skammast mín pínu en hey ef einhver skilur mann þá er það þetta fólk. Ein kona sem er yfir þarna fór með mig inn í eitt herbergið og útskýrði fyrir mér að þetta væru gleði fréttir en ekki vondar fréttir ... ég bara sá það ekki því ég greip bara þá staðreynd að ég mætti ekki fara í lyfjameðferðina og ég sá fyrir mér trilljón meinvörp í viðbót í millitíðinni ef ég fengi ekki lyfin mín .

Svona er maður þessa dagana maður meðtekur bara hálfa söguna þegar verið er að tala við mann. Ég er alveg farin að uppgötva það að maður þarf að hafa einhvern með sér þegar maður er að fá fréttir af framvindu mála því maður er alltaf í vörn og meðtekur bara hluta af því sem sagt er við mann og einhvern veginn er það alltaf það svarta sem maður grípur. Alveg ótrúlegt !!!

En allavega þá vona ég að eitthvað sé hægt að gera sem að gæti gefið mér pínu ljós í myrkrið sem ég er búin að vera föst í síðustu daga. Það væri nú fínt að fara að fá góðar fréttir til tilbreytingar til að ýta við baráttuviljanum.

18.10.2006 17:42

Sniff sniff

Alltaf halda "góðu" fréttirnar að streyma yfir mig eða þannig....  VÁ ..... Ég hlýt að hafa gert eitthvað mega ljótt af mér í fyrra lífi.... án gríns . Málin standa núna þannig hjá mér að eftir að ég fékk þessi meinvörp þá er ekki lengur von um lækningu. Það er hægt að reyna að halda þessu niðri með lyfjameðferð til að kaupa tíma en aðeins til að kaupa tíma. Ég er semsagt dauðvona og er það allt undir Guð komið núna hversu langan tíma ég fæ. Vonandi að Guð gefi það að ég fái nokkur ár en ef þessi hraða þróun eins og hún er búin að vera upp á síðkastið heldur áfram þá er það staðreynd að það verður ekki langur tími. Reyndar er ekki komin nógu löng reynsla með lyfjameðferðina og það er aldrei að vita nema að ég komi til með að svara henni vel og þessi hraða þróun minnki.

Ég dauðheld samt í þá von um að kraftaverkin geti gerst ... Ég bara verð að gera það til að halda geðheilsunni og krakkana vegna. Ég er ekki tilbúin að gefast strax upp ... ég bara má það ekki. Ég SKAL fá lengri tíma með börnunum mínum, fjölskyldu minni og honum Didda mínum sem ég er svo nýbúin að fá inn í mitt líf og hefur reynst mér svo vel. ÉG SKAL, ÉG SKAL, ÉG SKAL !!!!

16.10.2006 18:21

Fundurinn með Krabbó

Í morgunn mætti ég, Diddi minn og fjölskyldan mín á fund með krabbameinslækninum mínum.  Á þessum fundi endaði algjörlega von mín um að krabbameinið væri ekki farið að dreyfa sér því að læknirinn minn staðfesti það sem bróðir minn sá á myndunum mínum  . Ég er semsagt komin með nokkur meinvörp í lifrina sem að dreyfa sér víða og því engin von um skurðaðgerð eða geisla .... Þar með hrundi algjörlega öll sú jákvæða hugsun og trú sem ég var búin að ná að byggja upp síðan ég greindist. 

Ég ræð bara ekki við þá hugsun.. að í dag er ég ekkert voða jákvæð á framhaldið... Ég veit að ég verð að vera það krakkana vegna en.... HALLÓ.... krabbamein í lifur er ekkert grín eins og allir vita. Lifrin er náttúrulega líffæri sem enginn getur lifað án og erfiður staður að eiga við . Plús það er ég komin með einhvern djúsí feitan eitil í nára og það hræðir mig ennþá meira. Ég er ekki samt að segja að ég sé búin að gefast upp en ég er svartsýnari á að árángur náist allavega núna .

Lyfjameðferð minni verður breytt og vonandi sé ég einhvern árángur sem að hjálpar mér að fá smá smjörþefinn af bjartsýninni aftur. Það er þó einn jákvæður punktur við það að lyfjameðferðinni verði breytt ...hann er að ég þarf ekki að nota vettlingana meira því að lyfið sem að orsakaði þessar brenglun í húðinni verður skipt út fyrir annað  .... íhaaaaaa ...... .

Nýja lyfið sem verður bætt inn dregur úr blóðstreymi til lifrarinnar.. Með því er verið að vonast að hægt sé að svelta krabbameinsfrumurnar og koma þannig í veg fyrir að þær fái næringu til að vaxa og dafna. Maður verður að reyna að trúa því að þetta fari allt saman vel á endanum. 

 

14.10.2006 13:21

Bad news :(

Eins og ég var búin að segja áður þá þurfti ég að fara í sneiðmyndatöku í gær. Frétti það svo eftir á að það líti út fyrir að ég sé komin með fimm meinvörp í lifrina. Krabbameinslæknirinn minn á reyndar eftir að staðfesta þetta við mig en þetta virðist vera alveg öruggt. Eins og þið getið ýmindað ykkur þá er þetta mikið sjokk bæði fyrir mig og fjölskyldu mína.... Ég virkilega vonaði að við skurðaðgerðina hefði krabbinn farið og lyfjameðferðin væri bara fyrirbyggjandi en þetta ætlar víst að verða erfiðara en ég hélt  . Ég veit að sum ykkar komið til með að lesa þetta hér í staðin fyrir að frétta þetta beint frá mér ... ég vona að þið fyrirgefið mér það... ég bara treysti mér ekki að tala um þetta núna. Mig langar líka að biðja ykkur að gefa mér tíma til að melta þetta aðeins yfir helgina og vera ekki að hringja öll í mig.. Ég bara höndla það ekki núna og vona að þið sýnið því skilning. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra núna ég vildi bara koma þessu frá því ég veit að sum ykkar voruð að bíða eftir fréttum af þessari myndatöku.

Kiss og knús

Kv Ásta

12.10.2006 13:02

Bloggi Bloggason

Í gær nennti ég ekki að blogga eða réttara sagt þá var ég of þreytt og slöpp til að geta það   Í þetta skiptið komu áhrifin af lyfjunum fram miklu fyrr. Fyrstu vikuna þá byrjaði ég ekki að veikjast fyrr en seinnipartinn á fimmtudeginum... en núna varð ég eiginlega slöpp strax. Vonandi snýst þetta þá bara við og helgin verði því fín í staðinn... því síðast var ég svo hundveik alla helgina *krossafingur*

Minn yndislegi bróðir kemur til landsins í dag ... djöfull skall ég knúsa hann í klessu ... hehehehe...... Hann býr erlendis og ég hef í raun ekki séð hann síðan í júlí. Hann reyndar flaug til Íslands og kom til mín á spítalann þegar ég var sem veikust en ég man eiginlega ekkert eftir því. Við tvö höfum alltaf verið svo náin og mér finnst alltaf jafn erfitt að horfa á eftir honum út aftur ...... ein ógjeðslega eigingjörn   Við fjölskyldan ætlum því að koma saman í kvöld og borða góðan mat og vonandi verður heilsan til friðs á meðan.... En hey brósi er nú doksi þannig að ég ætti nú allavega að vera í góðum höndum .

Ég talaði um það um daginn hvað mér fyndist gott að tala við fólk sem væri líka með krabbamein. Að mér fyndist það skilja mann betur. Mér finnst það ennþá en ég hef samt verið að finna fyrir annarri hlið sem mér finnst vera rosalega sár. Núna upp á síðkastið hef ég verið að rekast á fleira og fleira fólk með sama krabbann og ég. Auðvitað leiðir það af sér að við förum að ræða saman og bera saman bækurnar og það hefur stungið mig pínu. Það sem stingur mig og hræðir er að ég er í raun versta tilfellið af þeim sem ég tala mest við. Ég veit um eina konu og einn mann sem krabbinn var kominn lengra en hjá mér en ég er ekkert að ræða við þau því þau eru eldri en ég. Æji það er svo sárt að vita til þess að maður sé eitt tilfellið af hinu slæmu. Þetta er nefnilega flokkað eftir útbreiðslu og annað. Þetta er semsagt flokkað í A B C D eftir umfangi krabbans og hvort hann hafi verið farinn að dreyfa sér. A er best og D er verst. Ég er semsagt í flokki C...  

Ég veit að það geri manni gott að vera innan um aðra sem að þekkja þetta af eigin raun en ég verð að viðurkenna að þetta dró aðeins úr mér kraftinn. Sérstaklega þegar ég heyrði að ristilkrabbi væri í öðru sæti um krabbamein sem drægi fólk til dauða veit reyndar ekki hversu satt það er.

Æji ekki skamma mig fyrir að vera svartsýn. Ég veit ég er það þessa dagana en hey ég skal lofa ykkur að það gengur yfir  Þetta er bara allt svo nýtt fyrir mér ennþá og ég er að læra að tækla þessar hugsanir og venjast þessum aðstæðum. Vona að ég sé ekki að draga ykkur niður með mér

1000 knús og kossar

Kv Ásta

 

10.10.2006 19:45

Þriðjudagurinn

Fór á spítalann aftur í dag. Lyfjameðferðinn gengur bara vel þrátt fyrir aukaverkanir. Mér finnst líka rosa gaman að hafa félagsskapinn af henni Dæju þótt maður náttúrulega óski engum það að vera með krabbamein. Það er bara svo gott að spjalla um tilfinningarnar við hana og bara allt sem þessu viðkemur enda báðar með sama krabbann, erum á sama aldri og báðar með börn.

Andlega hliðin er ennþá að plaga mig. Sterarnir valda því að annað hvort er maður hyper ofvirkur og ofsa kátur eða alveg á botninum. Síðast var ég þessi brjálaða ofvirka sí káta stelpa sem gat næstum því fært fjöllin en núna er ég niðurdregin, grátgjörn og fæ kvíðaköst trekk í trekk. Ég hef ekki töluna á því lengur hvað ég er búin að skæla oft síðan í gær ... hehehehe... heavy grenjuskjóða. Lenti í slæmu kvíðakasti seint í gærkvöldi þegar ég var komin upp í rúm og mér fannst ég ekki ná alveg andanum... en sem betur fer var hann Diddi minn hjá mér og gat tæklað þetta eins og honum er einum lagið. Þoli ekki þessa daga .... þoli ekki að hafa ekki stjórn á mér og ég sem er með fullkomnuna áráttu dauðans og er alltaf að passa upp á kúlið. Það má enginn sjá mig svona ... heheheheh.... en það er heldur ekki gott að takast á við þessi köst í einveru en ég reyni það samt sem er stúpid !! Kannski komin tími til að kyngja stoltinu og leyfa fólki að hugga mig... mér finnst það bara eitthvað svo asnalegt  .... Maður er nú orðin þrítug !!!! Tíhíhí

Adios

 

09.10.2006 15:40

Vika 2

Þá er vika 2 í lyfjameðferðinni byrjuð. Mætti snemma í morgunn og var að koma heim núna. Í dag fékk ég félagsskap því ég deildi stofu með annari sem ég nefndi á föstudaginn og það var sko mikið spjallað og dagurinn leið því hratt .

Á leiðinni heim kom ég við í búð og VÁ þá fékk ég að upplifa fyrir alvöru þessa skyn brenglun í húðinni út af lyfjunum. Mér var pínu kalt á puttunum og ég var komin með tárin í augun af bruna tilfinningu, verkjum og roða í fingrunum við það eitt að koma við hlutina í búðinni. Fólk var farið að stara á mig því ég stóð þarna með þessa bévítans tösku og slöngur út um allt og var alltaf að blása og hrista puttana til að reyna að draga úr áhrifunum ..... hehehehe ........ sjáið þig mig ekki í anda ????? Þegar ég kom heim mátti ég gjöra svo vel að fara í vettlinga svo ég gæti gengið frá vörunum

Í gærkvöldi eyddi ég kvöldinu á bráðarmóttökunni. Ég var svo rosalega kvalin í bakinu um helgina og varð því að fara upp eftir í skoðun. Fannst ekkert óeðlilegt í þessum rannsóknum sem voru gerðar nema blóð í þvagi og pínu blóðleysi en krabbameinslæknirinn minn vill skoða þetta nánar og þarf ég því að fara í sneiðmyndatöku á föstudaginn næsta.

Annars er ekkert annað merkjó að frétta af mér þannig. Helgin gekk vel með grísina, varð pínu þreytt inn á milli en þetta hafðist með góðri hjálp frá mömmu og Helgu. Veit eiginlega ekki hvernig ég færi að án þeirra. Knús á ykkur báðar.... ég veit að þið lesið allt sem ég bulla hér

Læt þetta duga í bili

Kiss kiss

Flettingar í dag: 130
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 326
Gestir í gær: 126
Samtals flettingar: 109914
Samtals gestir: 20853
Tölur uppfærðar: 19.9.2024 03:00:04

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir

Afmælisdagur:

9. ágúst 1976

Um:

~ Söfnun ~ 0525-14-102510 Kt:09.08.76-5469

Tenglar