Færslur: 2006 Júní16.06.2006 16:07Hm reglur fyrir konur ... HA HA HA HAHM reglur fyrir konur
REGLURNAR:
2. Á meðan á lokakeppni HM stendur er sjónvarpið mitt ? alltaf og án allra undantekninga. 3. Það er allt í lagi ef þú þarft að komast framhjá sjónlínu minni að sjónvarpinu svo lengi sem þú skríður eftir gólfinu og truflar mig ekki. Ef þér skildi detta í hug að standa nakin fyrir framan sjónvarpið farðu þá strax aftur í fötin þar sem ég mun ekki hafa tíma til að fara með þig til læknis fáir þú kvef. 4. Á meðan á leik stendur verð ég heyrnalaus, mállaus og blindur gagnvart þér ? nema ef til þess kemur að ég þurfi nýjan bjór eða eitthvað að borða. 5. Það er góð hugmynd fyrir þig að hafa alltaf alla vega tvær kippur af bjór vel kældar inni í ísskáp og nóg af snakki. Ef þú hagar þér vel fyrir framan vini mína máttu horfa á sjónvarpið frá klukkan 12 á miðnætti til 6 um morguninn ef það eru ekki neinar endursýningar á þeim tíma. 6. Ef þú sérð að ég er reiður eða pirraður þegar liðið mitt er að tapa viltu þá EKKI segja "þú jafnar þig ? þetta er bara leikur" eða "ekki hafa áhyggur ? þeir vinna kannski næst." Ef þú segir þetta verð ég bara reiðari eða pirraðari. Mundu ávallt að þú munt aldrei vita meira um fótbolta en ég og svona setningar verða bara til þess að við skiljum fyrr. 7. Þú mátt horfa á EINN leik með mér og þú mátt tala við mig í hálfleik, en bara þegar auglýsingarnar eru og bara ef staðan er góð. Taktu líka eftir að ég sagði EINN leik, ekki reyna að nota lokakeppni HM sem einhverja hörmulega tilraun til að "eyða tíma saman". 8. Endursýningar á mörkum eru mjög mikilvægar. Mér er alveg sama hvort ég hafi séð markið áður eða ekki, ég vil sjá það oft og mörgum sinnum í viðbót. 9. Segðu vinkonum þínum að eignast ekki börn á þessum tíma, ekki halda nein barnaafmæli eða aðrar fáránlegar veislur vegna þess að: 10. En athugaðu, ef vinur minn bíður mér í heimsókn til að horfa á leik er ég rokinn. 11. Markaþættirnir í lok dagsins eru alveg jafn mikilvægir og leikirnir sjálfir. Ekki detta í hug að láta út úr þér setningu eins og "en þú hefur séð þetta áður" eða "af hverju skiptir þú ekki um stöð?" Lestu aftur reglu númer 2. 12. Og að lokum, sparaðu þér setningu eins og "Guðs sé lof af lokakeppni HM er bara á 4 ára fresti". Ég heyri ekki þessa setningu enda tekur Meistaradeildin, Enski boltinn, Ítalski boltinn, Spænski boltinn og fleira við. Takk fyrir að virða reglurnar.
15.06.2006 10:49Teiknað með sandihttp://hugi.is/hahradi/bigboxes.php?box_id=51208&f_id=1523 Vá þetta er ekkert smá flott .... þið verðið að sjá .... og ekki skemmir undirspilið (æ nó ég er væmin hehheheh) mér finnst þetta bara geggjað
11.06.2006 00:49Im Back :)Langt síðan ég hef tjáð mig hér en ég hef löglega afsökun ........ ég skrapp með snúllurnar mínar í sumarbústað í viku. Ekkert smá skemmtileg ferð og mikill gestagangur og margt brallað. Nenni eiginlega ekki að fara út í smáatriði en það eru fullt af myndum úr ferðinni komnar á Barnalandssíðuna okkar þannig að þið sem hafið lykilorðið á henni endilega kíkið á þær og aðrir sem þekkja til mín og hafa ekki lykilorðið geta sent mér ósk um aðgang á hana Hér er linkurinn : http://www.barnaland.is/barn/12357
01.06.2006 21:55SNILLD ....... HAHAHAHAhttp://www.kvikmynd.is/myndband.asp?id=1823 HA HA HA HA ... talandi um leikhæfileika og þrjósku
Eða þetta litla rassgat .... hahhaahah
Flettingar í dag: 49 Gestir í dag: 16 Flettingar í gær: 159 Gestir í gær: 43 Samtals flettingar: 147391 Samtals gestir: 24622 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 07:21:35 |
Eldra efni
Um mig Nafn: Ásta Lovísa VilhjálmsdóttirTölvupóstfang: astalovisav@hotmail.comAfmælisdagur: 9. ágúst 1976Önnur vefsíða: http://www.barnaland.is/barn/12357Um: ~ Söfnun ~ 0525-14-102510 Kt:09.08.76-5469Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is