14.08.2007 09:52

Afmæliskveðja

Elsku Nína mín!

Til hamingju með daginn.   Afmæliskossar til þín og Ástu.

Daði bróðir

09.08.2007 13:33

Afmæliskveðja

Elsku Ásta mín!

Til hamingju með afmælisdaginn þinn.  Vona að þér líði sem best og að þú náir að njóta dagsins.  Söknum þín mikið.

Daði bróðir

30.05.2007 18:46

Engill á himni

Elskuleg systir mín, Ásta Lovísa, andaðist á Líknardeild Lsp í Kópavogi fyrr í dag.  Fjölskyldan vill senda þakkarkveðjur fyrir allan stuðninginn, hlýhug og falleg orð.  Þið gáfuð Ástu ómetanlegan styrk í baráttu hennar.

Með fyrirfram þökk og virðingu,

Daði bróðir

27.05.2007 22:56

Ósk

Eins og margir hafa eflaust séð fengum við ósmekklega athugasemd við bloggfærslu okkar hér fyrr í kvöld.  Ég hef nú fjarlægt þau komment og bið þá aðila, sem ekki eru sáttir við það sem hér fer fram, að blogga á eigin síðum og láta okkur í friði.

Með kveðju,

Daði bróðir

27.05.2007 12:53

Baráttujaxl

Ásta náði að hvílast vel í nótt.  Aukið við lyfjameðferð daglega til þess að láta henni líða sem best.  Lifrarbilunareinkennin aukast með hverjum degi en baráttuþrek Ástu eykst því samhliða.  Börnin eru í heimsókn í þessum töluðu orðum og tekst þeim alltaf að kalla fram það besta í mömmu sinni.  Ásta þakkar allar kveðjurnar og fallegu orðin, en kveðjurnar eru lesnar upp fyrir hana á hverjum degi, að hennar eigin ósk.
Sendir kossa og knús á línuna (hennar eigin orð) og segist ekki vera tilbúin í að leggja árar í bát.

Með kveðju,

Daði bróðir

25.05.2007 14:34

Svaf eins og engill

Eftir betri og öflugri verkjameðferð átti Ásta loksins góða nótt.  Svaf eins og engill og án verkja.  Ásta er meira vakandi í dag en áður og líður vel.  Hefur getað borðað aðeins og náð að spjalla við nánustu og átt góðar og fallegar stundir með börnunum.  Starfsfólkið og umhverfið hér á líknardeildinni er yndislegt.  Hún kastar kveðju til ykkar allra með þakklæti og virðingu.

Með kveðju,

Daði bróðir

23.05.2007 20:04

Fréttir af Ástu

Ásta hefur verið með töluverða verki síðustu daga og ekki náð góðum svefni.  Eftir niðurstöður rannsókna gærdagsins og í dag var ákveðið í samráði við Ástu að flytja hana á Líknardeild LSP.  Aðstæður og umhverfi fyrir sjúklinga og þeirra nánustu er mun betra þar.
Ásta vill þó koma á framfæri að hún lítur alls ekki á þetta sem endastöð og neitar alfarið að gefast upp.

Kveðja, Daði bróðir.

22.05.2007 13:48

Fyrirbænir

Hef sorglegar fréttir.  Ásta Lovísa er mjög veik eins og stendur.  Er komin í lifrarbilun sökum meinvarpanna.  Heldur áfram í rannsóknum í dag.  Hún vildi koma því á framfæri að hún væri ekki tilbúin í að gefast upp.  Bið ykkur öll um að hugsa til hennar og senda fallegar hugsanir.  Ef einhvern tíman er þörf, þá er stundin núna.

Daði bróðir

21.05.2007 17:22

Bakslag

Skrifa aftur fyrir hönd systur minnar.  Líðan hennar verið að versna undanfarna daga.  Ásta hitti krabbameinslækninn sinn seinni partinn í dag og í kjölfar þess ákveðið að leggja hana inn á krabbameinsdeildina til frekari rannsókna. 
Ásta sendir kveðjur og hefur beðið mig að láta ykkur vita þegar við vitum meira.

Kveðja,

Daði bróðir

20.05.2007 14:33

Úppps ..sorry... Betra seint en aldrei ;)

Það er orðið ALLT of langt síðan ég bloggaði síðast... Sé að ég er búin að valda sumum kvíða og áhyggjum.. sorry !
Ég er búin að vera frekar óþekk og vera sama og ekkert heima frá morgni til kvölds alla daga og því ekkert við tölvu.
Ég fékk allt í einu æði í að gera allt annað en að vera heima ... Hefði betur átt að slaka aðeins því ég fékk þetta allt í hausinn tilbaka.
Í gær varð ég þreföld eins og önd um allan líkamann af bjúgi og líkaminn sagði bara stopp.
Er komin á þvagræsislyf til að reyna að losa þetta og má voða lítið labba...NAUGHTY ME .
Það var bara eins og ég fengi vítamínssprautu í rassgatið og langaði bara að gera allt .

Ég er líka búin að vera í mikilli andlegri vinnu með hjálp góðra manna.
Ég hef lært meira á þessari viku en ég hef gert leeeeeengi.. Ég er því miður rosalega föst í fortíðinni og framtíðinni og gleymi að lifa í deginum í dag, njóta hans og vera þakklát fyrir að vera á lífi Í DAG !
Ég er allt of föst í gamalli gremju og gremjast út í gamla syndir mínar og annarra í minn garð.
Ég er að reyna að taka utan um þetta allt, knúsa þessa gremju og sleppa henni aftur fyrir mig og SLEPPA TÖKUNUM í eitt skipti fyrir öll.
Það er bara dagurinn í DAG sem skiptir máli og ég lifi í honum brosandi og glöð... Er því farin að byrja daginn á því að biðja um góðan dag og setja bros í hjarta mitt og opna fyrir hjartastöðina.
Ég er allt of föst í höfuðstöðinni en á að vera í hjarta og VÁ þetta virkar. Verðið að prufa án gríns .

Ég verð eiginlega að segja ykkur fyndna sögu.
Ég fór um daginn í búðina Betra líf í Kringlunni og var að kaupa einhverja steina og spil með svona spakmælum á.
Þegar ég kem heim þá er ég að taka upp úr pokanum og viti menn þarna laumaðist bók með sem heitir Fyrirgefning sem ég ætlaði mér ekkert að kaupa en bókin ætlaði greinilega með mér heim .
Það sem fyndnast við þetta allt saman er að það stendur í henni að þessi bók hafi örugglega komist í hendur mínar af tilviljun og þetta væri leið Guðs að ná til manns þegar maður þyfti mest á þessu að halda.
Ég er alveg heilluð af henni og er alltaf með hana í höndunum.
Þessi bók er bara ég og hvernig lífi ég hef lifað.
Þarna er manni kennt að taka allt svona fortíðardót, gera það upp, fyrirgefa og halda áfram í deginum í dag.
Ekkert smá fyndið .

Miðað við allt þá er ég ótrúlega glöð í hjartanu mínu þessa dagana og vonandi heldur það bara áfram.
Mér líður rosa vel, lítið um verki og er alveg ótrúlega ástfangin .
Ég er í raun ennþá svífandi á mínu bleika skýi og njóta þess að vera á lífi í dag.
Ég skal lofa að bæta úr bloggleysinu mínu.. Ætlaði ekki að láta fólk halda að eitthvað mikið væri að þegar ég þeysist um allan bæ á mínu bleika hamingjusama skýi

Knús á ykkur og prufið að byrja daginn á því að brosa, þakka fyrir daginn í dag og opna fyrir hjartað... Er það DÍLL ???

Knús og liðið

Tjá tjá

Ásta Lovísa

15.05.2007 15:45

Ljósið í myrkrinu, ljósið í lífi mínu...

Þó að ég hafi fengið hræðilegar fréttir í New York ... Gerðist jafnframt dásamlegur hlutur í mínu lífi .
Mig hefur mikið langað til að segja ykkur frá þessu fyrr en beit í tunguna á mér þar sem ég vildi segja fyrst vinum og ættingjum.
Ég hef yndislegar fréttir að færa ... Nú er ég opinberlega heitbundin kona .
Ég og Diddi minn trúlofuðum okkur á veitingastaðnum Rainbow Room í Rockafeller Center á 86. hæð.
Það er veitingastaðurinn sem t.d myndin Sleepless in Seattle er að hluta til tekin upp.
Aðstæður okkar eru skrítnar hvernig sem á það er litið en þetta var bara eitthvað sem að ég þráði svo rosalega á þessum tímapunkti í mínu lífi og þar sem ég elska þennan strák.

Langaði rosalega að deila með ykkur þessum frábæru fréttum .... I´M OFF THE MARKET !!!!

Ég er ekki mikið kvalin þessa dagana.. Kannski er ég ennþá svífandi um á mínu rómantíska skýi.. Allavega þá virðist það virka vel ... Því mér líður svakalega vel og er hamingjusöm og hef verið það síðustu daga.

Langaði að kasta kveðju á liðið.... Haldið áfram að vera góð við hvert annað.

Knús og klemmm

Kv Ásta Lovísa nýtrúlofaða

12.05.2007 21:44

Mætt aftur á svæðið

Loksins kom að því.. Er núna sest fyrir framan tölvuna og farin að skrifa nýja bloggfærslu.
Síðustu dagar hafa verið mér erfiðari en ég hef nokkurn tímann upplifað áður. Ég var svo full bjartsýnar og vonar og allt í einu sprakk blaðran og ég sé enga leið út.

En viti menn mér er nákvæmlega sama hvað hver segir. Ég ætla mér að lifa meira en nokkra mánuði. Það er ekkert hægt að segja svona og ákveða að þessi x manneskja eigi þessa x marga daga eftir.
Við erum jafn misjöfn eins og við erum mörg og ég er ákveðin að taka einn dag í einu og lifa sem lengst.

Ég er búin að ræða við tvö elstu börnin mín.
Úskýra fyrir þeim alvarleikann sem við mér blasir núna.
Þau verða að vita alla möguleikana og vera undir það búin.
Ég hélt svei mér þá að hjarta mitt myndi kremjast trillján sinnum á meðan.
Að sjá alla hræðsluna og örvæntinguna í litlu augunum þeirra og öll litlu tárin og geta ekki sagt neitt til að draga úr sársaukanum.
Get rétt ímyndað mér hvernig litlu skinnunum líður.... Úffffff lífið er svo ósanngjarnt eitthvað.

Ég vil ennþá trúa að ég eigi von. Ég vil ennþá trúa að ég eigi eftir að gifta mig eftir nokkur ár, ferma börnin mín o.s.frv .. o.s.frv.  Ég ætla mér og ég skal !!

Knús á línuna og takk fyrir allar fallegu kveðjurnar

Kv Ásta Lovísa

09.05.2007 18:58

Sorgarfréttir

Skrifa í dag fyrir hönd systur minnar sem treystir sér ekki til að skrifa.  Læknarnir höfðu samband.  Meinvörpin þekja nú 60% af lifrinni og það sem verra er sjást nú skýr merki þess að krabbameinið situr á fleiri stöðum í líkamanum.  Læknarnir í NY geta því ekki hjálpað, hvorki með skurðaðgerð né lyfjameðferð.  Sjúkdómurinn er ólæknandi og að sögn þeirra á Ásta nokkra mánuði eftir ólifaða.  Ráðlögðu þó ákveðinn lyfjakokteil heima á Íslandi með von um svörun.  Við erum á heimleið á morgun og er næst á dagskrá að hafa samband við læknana á Íslandi til þess að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að lengja þennan tíma.  Ásta þakkar kærlega fyrir veittan stuðning og hlýhug og sendir kossa á línuna.  Ásta biður um smá tíma til að melta þessi tíðindi í friði, þ.e. fyrir SMS og símhringingum.    Hún mun skrifa ykkur eins fljótt og hún treystir sér til.

Með kveðju og þökk,

Daði bróðir

09.05.2007 11:48

Svar óskast

Fengum því miður ekkert svar í gær.  Biðum og biðum en án árangurs.  Klukkan er núna 8 að morgni og erum við á leið niður á sjúkrahúsið til þess að fá svör.  Dálítið sérstök framkoma undir þessum kringumstæðum.  Látum ykkur vita um leið og við heyrum eitthvað. Vonandi fljótlega. 

Kveðja,
NY-farar

08.05.2007 19:22

Engar fréttir ennþá... :(

Erum búin að sitja við símann í allan dag og höfum ekkert frétt ennþá.. Því miður .
Ég bara varð að setja inn blogg því ég veit að það eru svo margir að bíða og bíða eins og við hér og ég er að fá endalaust sms.

Æji mér finnst pínu vont að vita ekkert og þeir sögðu í gær ætla að hringja á morgun .. Ekkert um tímasetningar eða neitt.
Klukkan hér núna er 15:19 þannig að ég get ekki ýmindað mér að þeir vinni mikið lengur í dag. Hvað ef þeir hringja svo ekkert í dag ???
Þá mæti ég þarna upp eftir strax í fyrramálið. Það er alveg á hreinu !!!
Ef ég má vera hreinskilin þá finnst mér þetta pínu furðuleg vinnuaðferð.. Vitandi að ég er þetta veik og komandi frá Íslandi.
Sorry þið bara verðið að afsaka taugarnar þær eru alveg að fara með mig. Svaf lítið vegna spennings .. Eðlilega !!

Um leið og ég heyri eitthvað hvort sem það verður á eftir í eða í fyrramálið .. Svei mér þá... Þá læt ég ykkur vita.

Pirrings kveðjur frá Ástu

Flettingar í dag: 130
Gestir í dag: 56
Flettingar í gær: 326
Gestir í gær: 126
Samtals flettingar: 109914
Samtals gestir: 20853
Tölur uppfærðar: 19.9.2024 03:00:04

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir

Afmælisdagur:

9. ágúst 1976

Um:

~ Söfnun ~ 0525-14-102510 Kt:09.08.76-5469

Tenglar