Þó að ég hafi fengið hræðilegar fréttir í New York ... Gerðist jafnframt dásamlegur hlutur í mínu lífi . Mig hefur mikið langað til að segja ykkur frá þessu fyrr en beit í tunguna á mér þar sem ég vildi segja fyrst vinum og ættingjum. Ég hef yndislegar fréttir að færa ... Nú er ég opinberlega heitbundin kona . Ég og Diddi minn trúlofuðum okkur á veitingastaðnum Rainbow Room í Rockafeller Center á 86. hæð. Það er veitingastaðurinn sem t.d myndin Sleepless in Seattle er að hluta til tekin upp. Aðstæður okkar eru skrítnar hvernig sem á það er litið en þetta var bara eitthvað sem að ég þráði svo rosalega á þessum tímapunkti í mínu lífi og þar sem ég elska þennan strák.
Langaði rosalega að deila með ykkur þessum frábæru fréttum .... I´M OFF THE MARKET !!!!
Ég er ekki mikið kvalin þessa dagana.. Kannski er ég ennþá svífandi um á mínu rómantíska skýi.. Allavega þá virðist það virka vel ... Því mér líður svakalega vel og er hamingjusöm og hef verið það síðustu daga.
Langaði að kasta kveðju á liðið.... Haldið áfram að vera góð við hvert annað.