09.05.2007 18:58
Skrifa í dag fyrir hönd systur minnar sem treystir sér ekki til að skrifa. Læknarnir höfðu samband. Meinvörpin þekja nú 60% af lifrinni og það sem verra er sjást nú skýr merki þess að krabbameinið situr á fleiri stöðum í líkamanum. Læknarnir í NY geta því ekki hjálpað, hvorki með skurðaðgerð né lyfjameðferð. Sjúkdómurinn er ólæknandi og að sögn þeirra á Ásta nokkra mánuði eftir ólifaða. Ráðlögðu þó ákveðinn lyfjakokteil heima á Íslandi með von um svörun. Við erum á heimleið á morgun og er næst á dagskrá að hafa samband við læknana á Íslandi til þess að gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að lengja þennan tíma. Ásta þakkar kærlega fyrir veittan stuðning og hlýhug og sendir kossa á línuna. Ásta biður um smá tíma til að melta þessi tíðindi í friði, þ.e. fyrir SMS og símhringingum. Hún mun skrifa ykkur eins fljótt og hún treystir sér til.
Með kveðju og þökk,
Daði bróðir