Skellti mér í heilun í morgunn.. Náði meira að segja að sofna þar þrátt fyrir ofvirknina út af sterunum .. Það segir allt sem segja þarf hversu gott þetta var .
Margir eru að svekkja sig á því að ég fái ekki meðferð þarna úti strax í þessari för. Málið er að þó svo að það væri í boði þá gæti líkaminn minn ekki tekið við neinum meðferðum núna því hann er ennþá of veikur eftir veikindin sem ég var að stíga upp úr. Við viljum nú ekki að meðferðin sjálf komi mér í gröfina þannig að það hefði hvort sem er ekki verið hægt. Ég er hætt að trúa á tilviljanir og ég veit að þetta á að vera svona og hitt fylgir svo á eftir þegar það á að gerast. Þarf nú varla að bíða mikið lengur þegar boltinn er kominn af stað. Ég trúi því allavega!! .
Solla í Ljósinu þú mátt endilega slá á þráðin til mín aftur við tækifæri. Ég man ekki númer þitt og langar svo að heyra í þér aftur .