Jæja þá er maður loksins komin heim... Get ekki lýst því hvað það er gott . Þetta eru búnar að vera frekar erfiðar tvær vikur.. Berjast við hita, verki og ógleði. Sýklalyfin virkuðu trúlega ekki og á endanum var ég meðhöndluð með steralyfjum sem að styðja líklega þá tilgátu að ég sé komin með svo kallaðan tumor hita . Þá leysa meinvörpin út eitthvað efni í líkamann sem að líkaminn svarar með því að gefa frá sér hita. Úfff ég ætla samt rétt að vona ekki.. því það ástand gæti þá verið komið til með að vera og þá þarf ég að vera mikið meðhöndluð af sterum sem er ekki gott fyrir líkamann lengi og ekki gaman að vera eins og útblásin hvalur alltaf hreint.
Á sunnudaginn er stefnan tekin á NY til að fá annað álit. Þá fæ ég að hitta læknana mína og verð send í CT scan í þeirri ferð . Er búin að fá tíma á mánudeginum þannig að núna er bara að halda mér í gjörgæslu og til að safna kröftum þangað til.
Ætla ekki að hafa þetta mikið lengra núna er ennþá frekar máttlaus og sloj.. Vildi bara láta heyra í mér og láta vita að ég er á batarvegi.