Ég hef ekki góðar fréttir að færa.. Því miður þá virðist það vera fastir liðir þessa dagana . Ég er búin að vera með verki í 2 daga og gat ekki meir í dag og hafði samband við spítalann. Ég var send í rannsóknir og í sneiðmynd eins og ég fór í síðustu viku. Ég fékk hræðilegar fréttir í kjölfarið. Versti bletturinn í lifrinni stækkaði úr 3.5 cm í 4.4 cm á EINNI viku. Hinir blettirnir stækkuðu allir líka þannig að þetta er gríðaleg breyting á rétt rúmri viku. Ég get ekki lýst því með orðum hvernig mér líður núna. Ég held að ég hafi aldrei verið eins hrædd ... *GRÁT*. Það er eins gott að ég komist til NY sem fyrst... Vonandi bara strax eftir páska. Það verður allavega keyrt á fullt núna.. Það er greinilegt að það getur ekkert beðið.