14.02.2007 21:19Kveðja smeðjaDagurinn í dag var rosa fínn. Skelltum okkur með allt liðið til Halmstad. Þar var farið í BR dótabúðina og öll börnin fengu að kaupa sér smá dót . Það er rosa gott að vera hérna. Búið að dekra við okkur þvílíkt og við fengið að borða þvílíkt góðan mat. Daði og Elva alveg að tapa sér í gestrisninni . Heilsan hefur alveg verið til friðs. Ég er svei mér þá farin að hallast að því að það geti bara ekki annað verið en að ég fái góðar fréttir í næstu viku. Finnst samt skrítið að ég hef aðeins verið að blása út. Skildi ekki alveg afhverju svona hratt og bara allt í einu... en svo benti Daði mér á það að ég hef verið að fá tvöfaldan stera skammt síðan milli jóla og nýárs og þeir geta haft þessi áhrif. Allt í einu eru allar gallabuxurnar mínar farnar að þrengja þvílíkt og mér liðið eins og strekktum kjúkling ... hehhhe... ég veit að Halla doksi er pottþétt ánægð með það... Hún hefur verið að reyna að fita mig... en ég verð bara að segja að mér finnst þetta aðeins tú much á svona stuttum tíma . Það er eitt sem mér finnst pínu skrítið eftir að ég veiktist. Er svo oft að lenda í því að fólk í kringum mig sé að segja mér eitthvað sem því finnst erfitt og svo bara allt í einu sagt: " Hvað er ég eiginlega að kvarta.. Þú ert nú að berjast fyrir lífi þínu". Ef ég má vera hreinskilin þá langar mig að vera ennþá sú Ásta sem ég var áður en ég veiktist. Ég vil vera þátttakandi í lífi minna nánustu og vina.... alveg sama hvort það sé þegar allt gengur vel eða ekki. Ég vil fá að vera til staðar og fá að hlusta eins og áður. Þó ég sé veik segir ekki að mitt líf þurfi að vera á einhverjum hærri stalli en líf annarra. Ég vil lifa sem eðlilegast og vil að fólk komi fram við mig á þann hátt.... Leyfið mér að vera sú Ásta sem ég var áður og leyfið mér að vera til staðar fyrir ykkur eins og áður. Er það díll ??? Skrifað af Ástu Lovísu Flettingar í dag: 301 Gestir í dag: 71 Flettingar í gær: 159 Gestir í gær: 43 Samtals flettingar: 147643 Samtals gestir: 24677 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 09:32:01 |
Eldra efni
Um mig Nafn: Ásta Lovísa VilhjálmsdóttirTölvupóstfang: astalovisav@hotmail.comAfmælisdagur: 9. ágúst 1976Önnur vefsíða: http://www.barnaland.is/barn/12357Um: ~ Söfnun ~ 0525-14-102510 Kt:09.08.76-5469Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is