17.11.2006 12:06
Kæru vinir. Hún Ásta okkar þarfnast bæna okkar allra virkilega mikið núna. Hún bað mig að skrifa ykkur smá línu, þar sem henni er mjög annt um að þið fáið reglulegar fréttir af henni.
Í nótt fékk hún svo mikla kviðverki og undir morgun var hún flutt með sjúkrabíl vegna verkja í kvið og baki. Ekki er komið á hreint hvað veldur, en við færum ykkur nýjar fréttir um leið og þær koma.
Allar fallegar hugsanir og bænir vel þegnar akkúrat núna.
Guð og blessi ykkur öll, og kærar þakkir.
Með kveðju,
Tobba vinkona.