03.11.2006 17:35

Föstudagsblogg

Ég vaknaði eitthvað lúin í morgunn.   Hélt svei mér þá að ég væri að fá einhverja pest því ég var með pínu beinverki, en sem betur fer þá hresstist ég með deginum. Er reyndar búin að vera með hósta frekar lengi sem virðist aldrei ætla að fara. Það er svo skrítið að eftir að ég veiktist þá má ég ekki fá verk nein staðar þá á ég það til að ýminda mér að krabbinn sé kominn á þann stað líka. Ég veit að lungun mín voru hrein á síðustu mynd og engin merki um meinvörp þar þannig að þetta hlýtur að vera eitthvað kvef sem ég er bara lengi að hrista af mér vegna allra lyfjana. Ég reyni að hrinda þessum hugsunum frá mér en þær eiga það til að banka upp á við og við  .... kannski ekkert skrítið miðað við allt sem undan er gengið ... en maður má bara ekki láta svona hugsanir ná tökum á sér. Það bara má ekki !!!

Núna er komin föstudagur og ég með krakkana mína um helgina. Ætla að að hafa kósý kvöld með krökkunum mínum ...... Ætlum að skreppa á Style-inn og fá okkur að borða, taka videó og hafa eitthvað gott að narta með myndinni . Ætla að reyna að vera ein með krakkana í nótt í fyrsta sinn þegar Írena er líka. Hef oft gert það með þau eldri en hef hingað til ekki treyst mér í það þegar lillan mín er því hún þarf mun meiri umönnun. Mamma er bara símtal í burtu þannig að þetta verður allt í lagi.

Hafið það gott um helgina !!

Kv Ásta
Flettingar í dag: 976
Gestir í dag: 258
Flettingar í gær: 326
Gestir í gær: 126
Samtals flettingar: 110760
Samtals gestir: 21055
Tölur uppfærðar: 19.9.2024 18:29:22

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir

Afmælisdagur:

9. ágúst 1976

Um:

~ Söfnun ~ 0525-14-102510 Kt:09.08.76-5469

Tenglar