15.05.2006 08:36

15. maí

 

Í dag 15. maí hefði mín ástkæra móðir orðið 55 ára hefði hún fengið að lifa með okkur. Í gær dró ég Önnu Þóru vinkonu með mér í blómastúss og tókum við leiðið hennar í gegn. Eftir á leið mér vel því ég er búin að vera frekar löt að sinna leiðinu hennar og var það orðið frekar sjúskað en núna er ég sátt við sjálfa mig :)

Í dag eiga Elva mágkona og Lilja krúttarapútt vinkona líka afmæli og langar mig að óska þeim til hamingju með daginn. Lilja ég er alveg viss um að þú pungir út krílinu þínu í dag enda ekki slæmt að fá það í afmælisgjöf :Þ Ég bíð spennt við símann eftir fréttum :)

Ég var að fara með grísina mína í skólann núna fyrir hálftíma síðan og núna í þessum töluðu orðum var ég að fá símtal frá leikskólanum og þarf ég að ná í litlu snúlluna mína aftur því þær segja að hún sé komin með hlaupabólu .... jæks :S   ........ Ég sem hélt að þetta væri bara ofnæmis útbrot like usual :( Úfff þá veit ég hvað það þýðir ..... andvöku nætur fram undan og mikill pirringur í litlu snúllunni minni ... *GRÁT* vonandi verður hún allavega ekki eins slæm og systir hennar var á sínum tíma *krossafingur*

Eigið góðan dag

Knús og kyss

Kv Ásta

Flettingar í dag: 908
Gestir í dag: 238
Flettingar í gær: 326
Gestir í gær: 126
Samtals flettingar: 110692
Samtals gestir: 21035
Tölur uppfærðar: 19.9.2024 18:08:03

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir

Afmælisdagur:

9. ágúst 1976

Um:

~ Söfnun ~ 0525-14-102510 Kt:09.08.76-5469

Tenglar