03.05.2006 11:49

Awwww

 

Jesús þetta er bara krúttilegt .... hhahahahah.  Þetta kallar maður vinskap!!!

 

Fékk skemmtilega heimsókn í gær. Frænka mín sem ég hef ekki séð í einhver ár sendi á mig sms og spurði hvort hún mætti kíkja  Hún kom ásamt krílunum sínum og svo kom Höddin mín líka ásamt krílinu sínu og við sátum og spjölluðum í marga klst það var bara eins og við værum búnar að vera allar í sambandi öll þessi ár.

Ekkert smá gaman og það var sko ákveðið að halda sambandinu í þetta sinn og meira að segja var ákveðið djúsí hitting líklegast með dildó kynningu og alles á næstu pabbahelgi hjá mér .... hahahha já ég er byrjuð að telja niður ekki leiðinlegt að sitja saman nokkrar stelpur í glasi og skoða þessa dýrgripi í öllum stærðum og gerðum og í öllum regnbogans litum .... WOW sounds good   Svo er aldrei að vita nema við skellum okkur svo í bæinn að kíkja á lífið

Án efa þegar við frænkurnar komum saman þá verður bærinn málaður rauður ef ég þekki okkur rétt enda allar með sama klikkaða genið í okkur ... hahahha ... og meira að segja ættarsvipinn sem að enginn af okkur tekur eftir en aðrir gera

Ég var að fá að vita það í gærkvöldi að ég er búin að fá sumarbústað .. jeiiiiiii get ekki beðið eftir því að komast aðeins úr bænum og slappa af í sveitinni með grísina mína liggjandi í heitapottinum og grilla. Mikið að spá hvort ég eigi að taka einhverja vinkonu mína með eða hvað. Miklu skemmtilegra að fara með einhvern félagsskap sem maður getur spjallað við á kvöldin svo maður sé ekki lonely.  

Helgin var fín mikið og margt brallað. Ég og Sirrý keyptum okkur meira að segja gömlu góðu hermannaklossana hahahah ekkert smá flottir og ég er búin að nauðga þeim síðan þá. Fengum okkur meira að segja hermanna bol í stíl ekkert smá flottar

Flettingar í dag: 976
Gestir í dag: 258
Flettingar í gær: 326
Gestir í gær: 126
Samtals flettingar: 110760
Samtals gestir: 21055
Tölur uppfærðar: 19.9.2024 18:29:22

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir

Afmælisdagur:

9. ágúst 1976

Um:

~ Söfnun ~ 0525-14-102510 Kt:09.08.76-5469

Tenglar