25.04.2006 13:37

Update

Helgin var þræl fín og margt og mikið brallað nenni eiginlega ekki að fara út í þá sálma :Þ

Ég er byrjuð núna í ræktinni á fullu ..... komin tími á að ég fari að hugsa aðeins meira um sjálfa mig og setja mig stundum í forgang geri allt of lítið af því. Fór í ræktina í gær, lét svo dekkja á mér hárið og þaðan í ljós maður fer bara að verða þvílíkt flott eða vonandi verð ég það ..... heheheh...  :Þ

Fór aftur í ræktina í morgunn með Önnu og váááááááá ég er komin með harðsperrur dauðans !!!!  En samt eitthvað svo þægilegur sársauki ... hahhaaha stupid æ nó ..... Ætlum að mæta aftur í fyrramálið ekkert smá duglegar.

Hey ég lenti í frekar skondnu atviki áðan dæs ...... ég skrapp út í búð sem er ekki frásögufærandi nema að þegar ég var að fara að borga fyrir vörurnar þá er maður fyrir aftan mig sem gæti án gríns verið pabbi minn og hann var eitthvað voða mikið að horfa eitthvað og svo allt í einu segir hann: "Mikið rosalega ertu falleg kona" ... *ROÐN* alveg rólegur á því að vera komin með gráa fiðringinn :Þ

Er að fara í rannsókn á fimmtudaginn ... :S er rosalega kvíðin en það verður gott þegar þetta er búið eða vonandi fer náttúrulega eftir því hvað kemur út úr henni. Skil samt ekki alveg afhverju ég er svona kvíðin því ég ætti að vera orðin ýmsu vön ...no comment með það meir !!!

Næsta helgi er barnlaus helgi og ég er alveg ákveðin í því að nýta hana vel ;) 

Flettingar í dag: 204
Gestir í dag: 118
Flettingar í gær: 111
Gestir í gær: 35
Samtals flettingar: 134089
Samtals gestir: 23289
Tölur uppfærðar: 9.11.2024 17:28:17

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir

Afmælisdagur:

9. ágúst 1976

Um:

~ Söfnun ~ 0525-14-102510 Kt:09.08.76-5469

Tenglar