21.04.2006 11:29

Blogg smogg

Mútta kom til mín í gær og djöflaðist í hausnum á mér :Þ 

Ég var alltaf að lenda í því að fólk spyrði mig hvað ég væri eiginlega með í hárinu mínu ...... nota bene þá voru þetta málningarslettur síðan síðustu helgi en ég leit út eins og ég væri með heavy stórar brund slummur í hárinu og þar sem ég vildi eiginlega ekki að fólk héldi að ég hefði ekkert annað að gera en að láta brunda í hárið á mér þá heimtaði ég að mútta kæmi í heimsókn og næði þessum andskota úr ;)   

Greyið konan sat sveitt heillengi og djöflaðist í hausnum á mér með lúsarkambi til að reyna að ná þessum fjanda úr. Hún hafði orð á því að það væri næstum því meiri vinna að ná þessu úr heldur en að mála alla stofuna .... hahahaha... þá vitið þið það að það borgar sig ekki að biðja fröken Ástu um að hjálpa sér að mála því þið gætuð lent í heavy vinnu við að þrífa frökenina aftur *hóst* það væri nú kannski ekki svo slæmt ef það væri á öðrum stöðum :Þ 

Anna Þóra kom til mín í gærkvöldi og við sátum og spjölluðum langt fram á kvöld og horfðum á heavy spennandi Nip Tuck þátt. Sátum eins og svín og tróðum í okkur nammi ..... og já elsku Höddin mín ef þú lest þetta þá er ég alveg að fara að hætta þessu sukki en nammið bara réðst á mig í gær þannig að ég hef afsökun ...... sorry en ég gat bara gat ekkert gert. Þannig að ég verð bara að hlaupa fimmfalt á hlaupabrautinni með þér næst ....  tíhíhíhí :Þ

Gréta snúll kom hérna við í vikunni var í stuttri heimsókn á Íslandi og er núna farin til Danmörku aftur *GRÁT*. Ég var að reyna að sannfæra hana um að það sé miklu betra að vinna á Íslandi í sumar heldur en að vinna í Danmörku hahahahha ..... eigingirnin alveg að drepa mig ... hahhaaha .... i just miss her so much :(  

Helgin fram undan og það er mömmuhelgi og það verður örugglega brallað eitthvað skemmtilegt um helgina. Vonandi að veðrið verði gott þannig að það sé kannski hægt að skreppa í sund eða eitthvað. Kemur í ljóst ;)

Tjá amigos

Flettingar í dag: 976
Gestir í dag: 258
Flettingar í gær: 326
Gestir í gær: 126
Samtals flettingar: 110760
Samtals gestir: 21055
Tölur uppfærðar: 19.9.2024 18:29:22

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Ásta Lovísa Vilhjálmsdóttir

Afmælisdagur:

9. ágúst 1976

Um:

~ Söfnun ~ 0525-14-102510 Kt:09.08.76-5469

Tenglar