22.12.2005 12:55
Þá er jólatré hríslan okkar komin upp og
krakkarnir voru að enda við að skreyta það hehehe. Frekar fyndið að sjá
það því að þau settu eiginlega allt skrautið á sama staðinn hehehehhe
þannig að að er ýkt öðru meginn en frekar tómt hinum megin :Þ
Ég er ekki ennþá búin að klára að þrífa enda ekkert mjög auðvelt að
reyna það með 3 grísi yfir sér allan daginn en þetta mjakast áfram hægt
og hægt.
Ég er allavega búin að versla allar jólagjafir og pakka þeim öllum inn
nema fyrir krakkana mína enda get ég ekki pakkað þeirra inn með þau
standandi yfir méri tíhíhí þannig að ég á eiginlega bara eftir að fara
að kaupa kerti á leiðin og setja hjá ættingjum mínum. Stefnan er að
gera það annað kvöld og flækjast aðeins með Tobbu vinkonu. Verður næs
að vera bara tvær barnlausar gellur að flækjast í bænum á þorláksmessu
;)
Kv Ásta jólasveinn