Ég er ennþá voða aum og bólgin og vááááááááá hvað þetta er vont !!!!!
Í gær var Sirrý vinkona svo sæt við mig hún mætti hérna með Thai mat handa mér nammi namm og sátum við á beit HA HA HA.
Stuttu seinna kom Stella líka og þegar Sirrý fór ákvaðum við að skella
okkur í ísbúð og vááá hvað það var gott að komast aðeins út en ég verð
samt að segja að þessi smá bílferð tók mikið á og ég var eiginlega
alveg búin á því þegar ég kom tilbaka heheheheh. Ein algjör mús :S
Ég og Stella láum upp í sófa og átum ís og nammi yfir Idolinu ekki
leiðinlegt það nema að ég varð pínu fúl að Elfa skildi ekki komast
áfram því hún stóð sig betur en Ingó þrátt fyrir að hann hafi verið
góður líka.
Ég er búin að vera rosa heppin og fá mikla hjálp í gegnum þetta.
Mamma er búin að vera eins og klettur mér við hlið og ég veit eiginlega ekki hvernig ég hefði farið af án hennar :)
Mútta Luv U :)