19.11.2005 12:50
Í gær ætlaði ég að skella mér á
afmælisfund Alanon en það skreið einhver ljótur leti púki upp í rassinn
á mér og neitaði að yfirgefa hlýjuna :Þ
Mamma var mætt á svæðið með KFC handa okkur og var ready að passa
grísina mína en hey mútta er svo skemmtileg þannig að ég ákvað að vera
bara heima líka og við lágum öll yfir IDOLINU og spændum í okkur nammi
:)
Krakkarnir mínir geta verið svo furðuleg stundum. Þegar það er skóli þá
tekur mig ár og aldir að ná þeim fram úr rúmunum og ég fæ að heyra
trilljón sinnum hvað þau séu þreytt og bla bla bla en þegar þau meiga
sofa eins og í morgunn þá bara vakna þau klukkan 7 alveg eitur hress
*pirr*pirr*pirr*
Afhverju er ekki hægt að sofa þegar maður má sofa?????
Í morgunn skelltum við okkur í geymsluna og grófum upp eitthvað af
jólaskrautinu og ég er langt komin með að setja seríur í gluggana.
Ég veit að ég er púkaleg að gera þetta svona snemma en ég er að fara í
aðgerð í vikunni þannig að ég kem ekki til með að geta gert neitt svona
á næstunni og þess vegna er ég að gera þetta núna.
Þannig að ég verð bara að vera púkó í friði and I like it :Þ
Kveðja Ásta letidrusla og yfir skreytari