10.11.2005 10:01
Miðvikudagarnir eru að mínu mati skemmtilegustu "virku dagarnir".
Þá á ég frí tíma að heiman og skelli mér á Alanon fund og á kaffihús
með liðinu þannig að þetta eru svo kallaðir hlaða batterýin dagar.
Ég skil ekkert í því afhverju það sé ekki alanon fag í grunnskólum og
framhaldsskólum Íslands því það hefðu allir svo gott að því að fara í
smá "naflaskoðun".
Ég veit svei mér þá ekki alveg hvar ég væri stödd í dag ef ég hefði
ekki álpast þarna inn einn daginn þegar mér fannst allt vonlaust og
svart.
Ætli ég væri ekki ennþá stödd í sama bullinu og endalaust að láta valta yfir mig og mínar tilfinningar?? Nokkuð viss um það :s
Kvöldið í gær var bara yndislegt í alla staði.
Fundurinn var heavy góður og ekkert smá fjör á kaffihúsinu enda félagsskapurinn ekki af verri endanum hehehehehe :Þ
Allavega var ég ennþá með bulluveikina sem að Sirrý smitaði mig af fyrr
um daginn hahahahah þannig að það má eiginlega segja að ég hafi smá
rasað út hvað munninn á mér varðar og það hélt áfram BELIVE ME!!!!!
SKAMM SIRRÝ ÞETTA VAR ALLT ÞÉR AÐ KENNA en ég veit að sumir kvarta ekki!!!! :Þ
Kv Ásta