08.11.2005 13:29
Ég var stödd inn í banka áðan og var eitthvað að glápa út um gluggann á meðan ég var að bíða eftir að röðin kæmi að mér.
Eftir smá stund sé ég jeppa druslu keyra utan í annan bíl og keyra svo
í burtu og ég ennþá full af gremju út af mínum bíl hehehehehe skrifa
niður nr á jeppanum og fer út að leita af eiganda hins bílsins sem ég
fann að lokum :)
Konu greyjið var ekkert smá glöð að ég skildi hafa haft fyrir því að
hafa upp á sér og láta sig hafa númerið á sökudólgnum og vonandi
tekur löggan viðkomandi í rassgatið í orðsins fylstu merkingu :Þ og
kennir viðkomandi kannski smá lexíu í leiðinni.
Ég rosa ánægð með góðverk dagsins í dag hefði bara viljað
að einhver hefði verið vitni af því þegar minn bíll var skemmdur og látið
mig vita en hey það er allavega gott að vita að það séu ekki allir sem
komast upp með að skemma eigur annarra .
Ég var að enda við að koma úr Bónus og versla inn fyrir pylsupartý heima hjá Tobbu á eftir ;)
Við vinkonurnar ætlum að hittast og gefa gormunum okkar að borða og
leyfa þeim að leika og ég verð nú bara að segja að ég er nú líka farin
að sakna Tobbu minnar pínu tíhíhí.
Þannig að það virðist ætla að rætast ágætlega úr þessum degi :)
Kv Ásta pylsa