07.11.2005 18:52
Bílinn minn fór á verkstæðið í morgunn loksins!!!
Var orðin frekar þreytt á að hafa hann svona beyglaðan og ljótan sérstaklega þegar maður olli ljótleikanum ekki sjálfur *grát*
Sumt fólk er fífl án gríns. Hvað er eiginlega málið að skemma bíla sér til skemmtunar???
Er ekki frekar hægt að bora í nefið, fara í fótbolta eða fá sér einn á broddinn í staðinn???
En í sárabót fékk ég þennan fína og flotta bílaleigubíl og mig langar
eiginlega ekki rassgat að skila honum aftur hehehehe. Þeir meiga bara
eiga minn í staðinn JE RÆT að þeir myndu fallast á það :Þ
Írena var nú samt ekki alveg á því að setjast inn í þennan ókunnuga bíl
og skildi ekki upp né niður í því hvað bílstólinn sinn væri
eiginlega að gara þarna en á endanum hætti hún sér inn í hann og var
bara voða sátt með bíltúrinn út í búð og svo heim =)
Til að toppa daginn þá er nýji fíni síminn minn kominn úr viðgerð JÁ
VIÐGERÐ hahahah meira apparatið það þannig að ég get farið að
símavændast á fullu aftur enda þekkt fyrir að vera með munnræpu á mjög
slæmu stigi :Þ
Já það er hægt að nota munninn í fleira enn að.............. tíhíhíhí.
Tjá amigos